13:00
Sögur af landi
Sumar: Sprenging í vita, kímniskáldið Káinn og togarinn Clyne Castle
Sögur af landi

Blanda er þemað í þessum þætti. Það má blanda ýmsu saman og blöndur er víða að finna í lífi hvers manns. Við fáum áfenga blöndu af humlum og geri á Ísafirði, blöndum krem og smyrsl í Hafnarfirði og svo er það sjálf Blanda sem rennur út í hafið. Allt þetta skoðum við í þessum síðasta þætti vertíðarinnar. Inslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.

Umsjón: Dagur Gunnarsson

Þá er komið að níunda og síðasta þættinum í sumarþáttaröð Sagna af landi, þar sem flutt hafa verið valin innslög frá liðnum vetri fyrir ykkur hlustendur að njóta í sumar. Við rifjum fyrst upp frásögn Óskars Þráins Finnssonar á Ólafsfirði þegar hann segir frá slysi sem hann varð fyrir þegar hann starfaði sem vitavörður. Heyrum einnig sagnfræðinginn Jón Hjaltason segja frá akureyríska kímniskáldinu Káinn. Að lokum er rætt við Ólafíu Herborgu Jóhannsdóttur um merkilega sögu strandaða togarans Clyne Castle.

Viðmælendur í þættinum voru Óskar Þráinn Finnsson, Jón Hjaltason og Ólafía Herborg Jóhannsdóttir.

Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,