Páll Ísólfsson
Heimildarmynd frá 1969 um Pál Ísólfsson tónskáld. Myndefnið er meðal annars tekið upp í sumarhúsi hans á Stokkseyri. Tekið er viðtal við tónskáldið á heimili hans og sýnd myndskeið…
Á árunum 1952-1958 lét Kvikmyndasjóður Skaftfellinga gera níu kvikmyndir í Skaftafellssýslum undir yfirskriftinni Í jöklanna skjóli. Þær fjalla allar um horfna atvinnu-, menningar- og lifnaðarhætti. Í þessari mynd frá 1953 er fjallað um meltekju. Heimilisfólk fer á hestum niður á sandana og sker upp melgresi. Öxin eru flutt heim á hestunum og þreskt á hlaðinu heima. Kvikmyndataka: Vigfús Sigurgeirsson.

Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.