Páll Ísólfsson
Heimildarmynd frá 1969 um Pál Ísólfsson tónskáld. Myndefnið er meðal annars tekið upp í sumarhúsi hans á Stokkseyri. Tekið er viðtal við tónskáldið á heimili hans og sýnd myndskeið…
Þann 30. mars 1949 urðu einhverjar mestu óeirðir Íslandssögunnar þegar inngöngu Íslands í NATO var mótmælt á Austurvelli. Þar lenti saman fylgjendum inngöngunnar, sem stóðu vörð um Alþingishúsið; lögreglu, sem beitti táragasi og kylfum; og mótmælendum sem notuðu grjót og hnefana. Vigfús Sigurgeirsson gerði myndina fyrir Unga Sjálfstæðismenn og hún átti að sýna hvernig kommúnistar réðust á Alþingi, svo vísað sé í titilinn. Hún var einungis sýnd á lokuðum viðburðum á vegum Ungra Sjálfstæðismanna en er nú varðveitt sem söguleg heimild um þennan örlagaríka dag.

Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.