Stutt kynning á störfum Lofts Guðmundssonar á hinni margfrægu ljósmyndastofu hans. Farið er í allt ferlið við ljósmyndun eins og hún fór fram árið 1927. Allt frá því að fyrirsætunni er stillt upp, lýsingin löguð og smellt af. Filmurnar eru svo framkallaðar og myndirnar stækkaðar á pappír. Þá þarf að retússera og tóna, skera myndirnar til og ganga frá þeim í karton. Myndin er einstök heimild um mikilvægt starf ljósmyndara. Kvikmyndataka: Loftur Guðmundsson.