Páll Ísólfsson
Heimildarmynd frá 1969 um Pál Ísólfsson tónskáld. Myndefnið er meðal annars tekið upp í sumarhúsi hans á Stokkseyri. Tekið er viðtal við tónskáldið á heimili hans og sýnd myndskeið…
Á árunum 1952-1958 lét Kvikmyndasjóður Skaftfellinga gera níu kvikmyndir í Skaftafellssýslum undir yfirskriftinni Í jöklanna skjóli. Þær fjalla allar um horfna atvinnu-, menningar- og lifnaðarhætti. Í þessum hluta frá árinu 1954 er sýnt frá kvöldvöku í baðstofum. Konurnar spunnu ull eða unnu aðrar hannyrðir, börnin léku sér að leggjum og skeljum og lesið var upphátt úr bókum. Í myndinni eru sviðsett atriði og leitast við að líkja eftir aðstæðum fyrri tíma. Kvikmyndataka: Vigfús Sigurgeirsson.

Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.