Útför Jónasar Hallgrímssonar var gerð 16. nóvember árið 1946 í fyrirhuguðum þjóðargrafreit á Þingvöllum. Nokkrir af fyrirmönnum þjóðarinnar sjást mæta til kirkju og bera kistuna út til jarðsetningar í hinum umdeilda grafreit, til að mynda Ólafur Thors, forsætisráðherra; Jónas Jónsson frá Hriflu, þingmaður Framsóknarflokksins; og Sigurgeir Sigurðsson, biskup Íslands. Kvikmyndataka: Vigfús Sigurgeirsson.