Páll Ísólfsson
Heimildarmynd frá 1969 um Pál Ísólfsson tónskáld. Myndefnið er meðal annars tekið upp í sumarhúsi hans á Stokkseyri. Tekið er viðtal við tónskáldið á heimili hans og sýnd myndskeið…
Slökkviliðsæfingin er elsta varðveitta kvikmynd sem er tekin upp hér á landi. Sýnt er frá slökkviliðsæfingu í Reykjavík árið 1906 og sjá má drengi og menn fylgjast með af áhuga. Að öllum líkindum var danski kvikmyndatökumaðurinn Alfred Lind á bak við myndavélina. Hann var staddur hér á landi til að koma á laggirnar Reykjavíkur Biograftheater, betur þekkt sem Gamla bíó.

Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.