Páll Ísólfsson
Heimildarmynd frá 1969 um Pál Ísólfsson tónskáld. Myndefnið er meðal annars tekið upp í sumarhúsi hans á Stokkseyri. Tekið er viðtal við tónskáldið á heimili hans og sýnd myndskeið…
Á árunum 1952-1958 lét Kvikmyndasjóður Skaftfellinga gera níu kvikmyndir í Skaftafellssýslum undir yfirskriftinni Í jöklanna skjóli. Þær fjalla allar um horfna atvinnu-, menningar- og lifnaðarhætti. Í þessum hluta frá árinu 1956 er fjallað um verkin sem tengjast húsdýrunum. Ánum er gefið í fjárhúsinu og kúnum í fjósinu. Fjósakonan mjólkar og mokar flórinn. Í mjólkurhúsinu er mjólkin skilin og gerður ostur. Atriði í myndinni eru að nokkru leyti sviðsett og leitast er við að líkja eftir klæðaburði og verklagi fyrri tíma. Kvikmyndataka: Vigfús Sigurgeirsson.

Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.