Í þættinum er fjallað um hvalveiðar og nýtingu hvals, hvalreka, hvalrekaítök og hvalskipti að fornu hér á landi.
Flutt er erindi Gils Guðmundssonar um hvalveiðar hér við land árið 1948. Hann segir frá veiðiferð með Hval I, en því skipi stjórnaði tæplega fertugur hvalveiðiskipstjóri, Axel að nafni.
Ennfremur er lesið uppúr Íslandslýsingu Odds Einarssonar frá árinu 1588. Þá er lesin héraðsskipan Sæmundar goða Ormssonar fyrir Hornafjörð sem er frá 1242-1251. Þar er getið um hvernig fara skuli með hvalreka á bújörðum og almenningi við Hornafjörð og Skarðsfjörð.