Þáttur 47 af 60
Í þættinum er leikin ýmiskonar íslensk tónlist, þ.á.m. Gilsbakkaþula í flutningi barnakórs og nemenda Hlíðakóla og Tilbrigði við rímnalag op. 7 eftir Árna Björnsson í flutningi Sinfóníuhljómsveitar…
Tónlist og talmálsefni úr safni útvarpsins.
Í þættinum er endurflutt brot úr eftirfarandi liðum úr segulbandasafni RÚV:
Ásgeir Guðmundsson, hreppstjóri, oddviti og dýralæknir, úr Æðey í Ísafjarðardjúpi segir frá stuttum fundi sem hann átti með Einari Benediktssyni skáldi. Ragnar Jóhannesson cand. mag. ræðir við Ásgeir.
Guðmundur G. Hagalín, rithöfundur, flytur brot úr erindi sem hann hélt í Útvarpinu 01.05.1959. Þar ræðir hann um kjör alþýðunnar fyrrum.
Umsjónarmaður: Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1998)
