Perlur

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 42 af 60

Tónlist og viðtöl úr safni útvarpsins.

Endurfluttur er gamall íþróttaþáttur þar sem Guðjón Einarsson flytur erindi, en það var aðeins fjallað tvisvar um knattspyrnu í útvarpi árið 1948.

Endurflutt er erindi séra Sigurðar Einarssonar í Holti sem nefnist "Hví erum vér svo lausir við landið".

Leikin eru lög með Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar og þeim Gellin og Borgström, sem komu hingað til lands á sínum tíma og léku tónlist sína fyrir landsmenn við miklar vinsældir.

Einnig er lesið úr lesendabréfi Þorgríms Einarssonar á Búastöðum til Útvarpstíðinda, þar sem hann lýsti vanþóknun á "villimannadjassi" sem sendur var út frá Hótel Borg og bað um fleiri lestra úr góðum bókum og harmoníkutónlist, sem hann óttaðist að væri kominn úr móð.

Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.

(Áður á dagskrá 1999)

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Perlur

Þættir

,