Perlur

Þáttur 47 af 60

Í þættinum er leikin ýmiskonar íslensk tónlist, þ.á.m. Gilsbakkaþula í flutningi barnakórs og nemenda Hlíðakóla og Tilbrigði við rímnalag op. 7 eftir Árna Björnsson í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Flytjendur tónlistar: Guðrún Tómasdóttir ; Ólafur Vignir Albertsson ; Barnakór Hlíðaskóla ; Máni Sigurjónsson ; Sinfóníuhljómsveit Íslands ; Karlakórinn Heimir ; Kristinn Hallsson ; Árni Kristjánsson.

Séra Jakob Jónsson flytur brot úr erindi sínum "Um daginn og veginn" og ræðir m.a. um nýafstaðna jólahátíð, stuld á grenitrjám úr skógræktarreitum og fleira í þeim dúr. Frumflutt 29. des. 1947.

Ágúst Vigfússon les frásöguþátt Jóhannesar Ásgeirssonar af Gísla Jóhannssyni, bónda í Pálsseli í Laxárdal í Dalasýslu, sem lenti í villu á milli bæja á gamlársdag 1903, þar sem jörð var alhvít og fátt um kennileiti til rata eftir.

Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.

(Áður á dagskrá 1998)

Birt

29. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Perlur

Þættir

,