Sigrún Tinna Sveinsdóttir
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn er Sigrún Tinna Sveinsdóttir, sem verður í beinu sambandi frá Nýju Delí á Indlandi, en hún vinnur fyrir utanríkisþjónustuna þar. Við…
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn er Sigrún Tinna Sveinsdóttir, sem verður í beinu sambandi frá Nýju Delí á Indlandi, en hún vinnur fyrir utanríkisþjónustuna þar. Við fáum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Shuka Saptati, Seventy Tales of the Parrot, höfundur óþekktur
Saga af svartri geit e. Perumal Murugan
Shattered Lands: Five partitions and the making of modern Asia e. Sam Dalrymple
Ráðuneyti æðstu hamingju e. Arundhati Roy
A Fine Balance e. Rohinton Mistry

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.