Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari og rithöfundur. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigurlín talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Þúsund og einn hnífur og fleiri sögur frá Írak e. Hassan Blasim í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar
Þríleikur (Things I don't want to know, The cost of living og Real estate) e. Deborah Levy
The white road:Journey into an obsession e. Edmund de Waal
Mountains of the mind: A history of fascination e. Robert MacFarlane
Biblían, Þórarinn Eldjárn, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Tomas Tranströmer