Fram og til baka

Bestu fimmurnar 2023

Fyrsti þáttur ársins var tileinkaður síðasta ári og nokkur vel valin brot úr fimmum ársins tekin til. Viðmælendur þessu sinni voru Hafdís Huld sem kom í janúar, María Reyndal en hún kom í mars og Sonja Ýr Þorbergsdóttir sem kom í spjall í apríl. Í seinni hlutanum heyrðist í gesti frá því 17. júni en það var Ólafur Þ Harðarson. síðustu komu þau Rósa Magnúsdóttir og Kiddi Hjálmur við sögu en bæði kíktu í kaffi á haustdögum.

Frumflutt

6. jan. 2024

Aðgengilegt til

5. jan. 2025
Fram og til baka

Fram og til baka

Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra

Þættir

,