
Bæn og hugleiðing að morgni dags.


Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög þar sem ljóðaþýðingar Magnúsar Ásgeirssonar koma við sögu, lög eftir sænska og íslenska höfunda. Anna Pálína Árnadóttir syngur Söng Fríðu, eða Í fyrsta sinn ég sá þig. Gunnar Guttormsson syngur tvö lög, annarsvegar Mansöngvarann og hinsvegar Ameríkubréfið. Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann. Lónlí blú bojs flytja Laugardagskvöld á Gili. Bubbi Morthens syngur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar. Páll Óskar Hjálmtýsson syngur lag Páls Torfa Önundarsonar við Enska manvísu frá 14. öld. Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við ljóð sem heitir Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt flytja íslenska gerð ljóðsins Konungurinn í Thule eftir Göthe.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.


Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Gestur Þorgrímsson umsjónarmaður þáttarins Um helgina fór 1957 niður að nöfn til að taka upp fuglahljóð en endaði úti í flutningaskipinu Reykjafossi að ræða við skipverja um smygl og komst svo að ýmsu um hrossaútflutning Íslendinga um þær mundir og nokkuð óvanalega markaðssetningu. Um það ræddi Gestur við Gunnar Bjarnason hrossaræktarráðunaut.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Linda Ásdísardóttir.

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Prélúdía nr. 4 í e-moll, Lento úr Prelúdíum op. 28. Árni Kristjánsson leikur á píanó.
Hljóðritun úr safni Ríkisútvarpsins 1983.
Sex bagatellur Op. 9 eftir Anton Webern. Kordo-kvartettinn leikur.
(Páll Palomares, fiðla; Vera Panitch, fiðla; Þórarinn Már Baldursson, víóla; Hrafnkell Orri Egilsson, selló)
Þættirnir eru:
1. Mässig
2. Leicht bewegt
3. Ziemlich fliessend
4. Sehr langsam
5. Äußerst langsam
6. Fliessend
Fyrsti þáttur, Mässig úr Strengjakvartetti nr. 2 í fís-moll, op. 10 eftir Arnold Schönberg. Emerson-kvartettinn leikur. (Eugene Drucker, fiðla; Philip Setzer, fiðla ; Lawrence Dutton, víóla; Paut Watkins, selló)
Fyrsti þáttur, Largo - attacca úr Strengjakvartetti nr. 8 í c-moll op. 110 eftir Dmitríj Shostakovitsj. Borodin-kvartettinn leikur. (Rostislav Dubinsky, fiðla; Yaroslav Aleksandrov, fiðla; Dimitri Shebalin, víóla; Valentin Berlinsky, selló)
Annar þáttur, Largo, úr Píanósónötu nr. 2 op. 61 eftir Dmitríj Shostakovitsj. Vladimir Ashkenazy leikur á píanó.
'Points on the curve to find...' : fyrir píanó og 22 hljóðfæraleikara eftir Luciano Berio. Pierre-Laurent Aimard leikur á píanó með Ensemble InterContemorain. Stjórnandi er Pierre Boulez.
Ballaða nr. 2 op. 38 í F-dúr eftir Frédéric Chopin. Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur á píanó.
Logn (2019) fyrir sópran, píanó og selló eftir Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Gerður Kristný Guðjónsdóttir orti ljóðið. Azima Ensemble flytur (Margrét Hrafnsdóttir, sópran; Ólöf Sigursveinsdóttir, selló; Hrönn Þráinsdóttir, píanó). Hljóðritun frá 2022.

Umsjón: Illugi Jökulsson
Umsjón: Illugi Jökulsson
Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir starfaði lengi hjá stofnun Árna Magnússonar og kvaddi stofnunina með mikilli bók þar sem hún rannsakaði merkilega forna rímu, er fjallaði um Mábil sterku. Sjaldgæft var að rímur fjölluðu um konur en Mábil sterka var heldur ekki nein venjuleg kona. Valgerður fjallar um rímuna, Mábil og rímur yfirleitt í spjalli við Illuga Jökulsson og Guðrún S. Gísladóttir les brot úr rímunni.

Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer því að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.
Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:
https://www.facebook.com/groups/1247768283945537


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Hljóðritun frá kammertónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg, 27. júní þar sem hljómaði ljóðasöngur með strengjakvartett, píanói og gítar í flutningi söngkvennanna Guðrúnar Jóhönnu Ólafsdóttur og Halldóru Óskar Helgadóttur, Þóru Kristínar Gunnarsdóttur píanóleikara, fiðluleikaranna Bjargeyjar Birgisdóttur og Sólveigar Steinþórsdóttur, Fidels Atla Quintero Gasparssonar víóluleikara, Júlíu Mogensen sellóleikara, Xun Yang kontrabassaleikara og gítarleikarans Francisco Javier Jáuregui.
Á efnisskrá:
-Chanson perpétuelle eftir Ernest Chausson.
-Sönglög eftir Pauline Viardot-Garcia í útsetningu Franciscos Javier Jáuregui fyrir rödd, píanó og strengi.
-Cantabile fyrir fiðlu og gítar eftir Niccolo Paganini.
-Söngur fuglanna eftir Pablo Casals í útsetningu Xaviers Montsalvagte fyrir söngrödd, selló og píanó.
-Tveir söngvar, Zwei Gesänge, eftir Johannes Brahms mezzósópran, víólu og píanó.
- Pastorcito Santo eftir Joaquín Rodrigo, fyrir söngrödd og klassískan gítar.
-LJóðaflokkurinn Mädchenblumen eftir Richard Strauss.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Linda Ásdísardóttir.

Hljóðritun frá 1989
Hljóðritun frá 1989
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Hjá vondu fólki. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Útvarpsfréttir.


Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Umsjón: Friðrik Ómar.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.



Útvarpsfréttir.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Tónlist að hætti hússins.