19:50
Úr íslensku tónlistarlífi
Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Tónlistin í þættinum:

Heyri ég í hamrinum, lag Jóns Björnssonar við ljóð Kjartans Ólafssonar. Ólafur Þ. Jónsson, tenór syngur, með leikur Ólafur Vignir Albertsson á píanó. Hljóðritunin var gerð 5. júlí 1972.

Veislan á Sólhaugum (1943), leikhústónlist eftir Pál Ísólfsson, samin fyrir uppfærslu á samnefndu leikriti eftir Henrik Ibsen. Þættir verksins eru eftirfarandi:

1. Forleikur

2. Brúðkaupsmars

3. Halling

4. Bergbúinn

5. Marica funèbre

Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Rumons Gamba. Hljóðritun fór fram í Eldborg Hörpu 13.-15. júní árið 2022. Útgefið á plötunni Icelandic works for the stage 2023.

Man ég enn menjalundinn eftir Gabríellu Snót Schram. Textinn er þjóðvísa, úr þjóðsögu. Kammerkórinn Huldur syngur, stjórnandi er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Útgefið á plötunni Í fossgljúfri, 15. maí 2026.

Píanósónata nr. 30 í E-dúr, op. 109 eftir Ludwig van Beethoven.

Þættir verksins eru:

I Vivace ma non troppo - Adagio espressivo

II. Prestissimo

III. Andante molto cantabile ed espressivo

Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið á plötunni Opus 109 árið 2025.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 35 mín.
,