18:00
Kvöldfréttir útvarps
Hitabylgja í Evrópu, sprengjuhótun til Hvals hf., Ísraelar drepa palestínsk börn vísvitandi í árásum

Fréttir

Fréttir

Hitamet féllu víða um Evrópu í dag. Rauði krossinn varar fólk við og segir hitann stofna mannslífum í hættu.

Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst hótun í gegnum Neyðarlínuna í nótt um að sprengibúnaði hefði verið komið fyrir í öðru hvalveiðiskipa Hvals hf. og að hann yrði virkjaður ef skipin héldu aftur til veiða, lögregla rannsakar málið en telur hótunina ekki trúverðuga.

Brýn samgönguverkefni á Austurlandi sem vilyrði var fyrir hafa verið slegin af eða færð aftar í samgönguáætlun - Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann, segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Samhjálp fær ekki að opna kaffistofu við Grensásveg 46.

Opnun sendiráðs á Íslandi er í forgangi hjá spænskum stjórnvöldum, segir utanríkisráðherra Spánar. Íslensk stjórnvöld opnuðu sendiráð í Madríd í fyrra.

Portúgalinn Cristiano Ronaldo varð í dag fyrsti leikmaðurinn til að skora mark í sex lokamótum HM í fótbolta.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,