Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Rætt var um nýja skýrslu um efnahag lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Íslandsbanki og Reykjavik Economics unnu. Magnús Árni Skúlason hagfræðingur sagði rekstrartekjur og arðsemi hafa dregist saman og óvissa ríkti fyrir komandi misseri. Þá var rætt um öldrun stjórnenda fyrirtækja en flestir eru þeir 56 ára eða eldri en um aldamót voru flestir á aldrinum 36-45 ára.
Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason meðal annars frá lífinu í hitunum í Berlín og víðar í Þýskalandi. Hann ræddi líka um þá staðreynd að helmingur leikmanna þýska landsliðsins á HM í fótbolta er af erlendu bergi brotinn og sagði frá skáldkonuninni Ingeborg Bachmann en öld er síðan hún fæddist.
Í síðasta hluta þáttarins var endurleikið viðtal frá september við Elvu Björgu Einarsdóttur Vatnsfirðing um friðlandið í Vatnsfirði.
Tónlist:
Sail on - Magnús og Jóhann,
Sumir dagar - Magnús og Jóhann,
Lady Madonna - Björn Thoroddsen,
Þín innsta þrá - B.G. og Ingibjörg.

07:30

08:30


Veðurstofa Íslands.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag.
Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan.
Tónlist í þættinum í dag:
Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson)
Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Fullt af spurningum, fullt af svörum!
Krakkar á öllum aldri spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar og sérfræðingar svara.
Er eitthvað sem þig langar til að vita? Taktu upp spurninguna þína, mundu eftir að segja okkur nafnið þitt og aldurinn (þarf ekki að vera fullt nafn) og sendu í tölvupósti á [email protected].
Umsjón: Hera Guðmundsdóttir.
Einar Bragi, 7 ára, spyr hvenær golf varð til. En hafa allaf verið sömu reglurnar í golfi? Stefán Pálsson sagnfræðingur svarar.
Útvarpsfréttir.
Rauð viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna hitabylgjunnar sem gengur yfir vesturhluta álfunnar og er í gildi í fimmtán borgum á Ítalíu, og víða á Spáni og í Frakklandi. Í Madrid er búist við fjörutíu stiga hita síðdegis.
Milljarða uppbygging gagnavers Borealis á Blönduósi býr til 150 störf á framkvæmdatíma. Borealis og Landsvirkjun kynntu nýjan samning um kaup á raforku í dag.
Vinnsla er hafin í hvalstöðinni í Hvalfirði eftir þriggja ára hlé. Skiptar skoðanir eru um ágæti og tilgang hvalveiða.
Áratugur er síðan Bretar kusu að fara úr Evrópusambandinu. Meirihluti ungra Breta telur að Brexit hafi mislukkast og vill aðra þjóðaratkvæðagreiðslu.
Franskir ferðamenn, sem voru sektaðir fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina, höfðu verið gripnir við iðjuna áður og fengið tiltal landvarða en létu sér ekki segjast.
Kyrkingar í kynlífi eru orðnar algengari en áður, segja samtök gegn kynbundnu ofbeldi. Mörgu ungu fólki finnst ofbeldisfullt kynlíf sjálfsagt vegna þess að það sést í klámi.
Fresta varð leik Frakka og Íraka á heimsmeistaramótinu í fótbolta í hálfleik í gærkvöldi vegna þrumuveðurs. Eftir rúmlega tveggja klukkustunda bið var leik haldið áfram á rennblautum velli.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Á föstudaginn lauk Alþingi störfum þennan þingvetur og þingmenn héldu í sumarfrí. 188 frumvörp voru lögð fram og af þeim urðu 105 að lögum, 83 voru óútrædd og eitt ekki samþykkt. Rýnt er í stöðu mála með Viktori Orra Valgarðssyni, doktor í stjórnmálafræði.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Fátt finnst Inga Garðari Erlendssyni skemmtilegra en að vinna með börnum, nema það sé þá kannski að gera tilraunir í tónlist. Hann var einn af félögum í S.L.Á.T.U.R. hópnum, sælla minninga, sem leitaði nýrra leiða til að semja og flytja tónlist og er enn að leita.
Lagalisti
CD Hefti 1 - S:I-S:II
Óútgefið - Tveir
Óútgefið - Fimm
Roto Con Moto - Streptococcaceae
Skeylja - Hoarn
Óútgefið - Pólýkubb með rana
Óútgefið - Þránófónn í Mengi
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þessi þáttur er fluttur um það bil sem 40 ár eru frá því fyrsti þáttur Frjálsra handa var sendur út. Sá þáttur fjallaði um "hið sögulega ef" - það er að segja hvað hefði breyst ef einhver tiltekin smáatriði í sögunni hefðu farið öðruvísi en þau fóru. Í tilefni dagsins verður fjallað um sama efnið í þessum þætti og sér í lag hvað hefði breyst ef valdarán kommúnista í Rússlandi 1917 hefði misheppnast.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Við mælum okkur mót við meðlimi tríósins Brenninetlu; hljómsveit sem leikur djass og frjálsan spuna, en sækir líka áhrif í ýmsar aðrar áttir. Brenninetla lenti í örðu sæti í Músíktilraunum nú í vor og vinnur nú hörðum höndum að gerð sinnar fyrstu breiðskífu. En þeir félagar munu koma fram á tónleikum í Jazz Sunday Reykjavík tónleikaröðinni í Iðnó nú á sunnudag. Við ræðum við tríóið í þættinum.
Gauti Kristmannsson bókmenntarýnir fjallar um þýðingu á bókinni Villistrákum eftir bandaríska rithöfundinn Williams S. Burroughs en hún segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.
Og að gefnu tilefni rifjum við upp umfjöllun um tónlistarmanninn Henry Threadgill og heyrum af óþægilegum samskiptum hans við Sikileysku mafíuna.
Fréttir
Fréttir
Hitamet féllu víða um Evrópu í dag. Rauði krossinn varar fólk við og segir hitann stofna mannslífum í hættu.
Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst hótun í gegnum Neyðarlínuna í nótt um að sprengibúnaði hefði verið komið fyrir í öðru hvalveiðiskipa Hvals hf. og að hann yrði virkjaður ef skipin héldu aftur til veiða, lögregla rannsakar málið en telur hótunina ekki trúverðuga.
Brýn samgönguverkefni á Austurlandi sem vilyrði var fyrir hafa verið slegin af eða færð aftar í samgönguáætlun - Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann, segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Samhjálp fær ekki að opna kaffistofu við Grensásveg 46.
Opnun sendiráðs á Íslandi er í forgangi hjá spænskum stjórnvöldum, segir utanríkisráðherra Spánar. Íslensk stjórnvöld opnuðu sendiráð í Madríd í fyrra.
Portúgalinn Cristiano Ronaldo varð í dag fyrsti leikmaðurinn til að skora mark í sex lokamótum HM í fótbolta.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Á aukabúnaðarþingi sem haldið verður 14. ágúst taka bændur afstöðu til Evrópusambandsaðildar - ekki til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem verður síðar í ágúst, segir Trausti Hjálmarsson, formaður samtaka þeirra.
Rauð, appelsínugul og fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna steikjandi hita og fólk drukknar þegar það reynir að kæla sig. Í Frakklandi hafa að minnsta kosti fjörutíu drukknað í ám og vötnum undanfarna daga.
Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann í nýrri samgönguáætlun að mati Ragnars SIgurðssonar, formanns Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Brýn samgönguverkefni sem vilyrði var fyrir hafi ýmist verið slegin af eða færð aftar í áætluninni.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Í tónleik verður leikin sumarleg og vermandi tónlist. Cecilia Bartoli syngur nokkrar gamlar antikaríur um ástina, friðinn, vonina og fegurðina, og Rosalyn Tureck leikur tvö sálarstyrkjandi verk eftir Johann Sebastian Bach Aríu og tíu tilbrigði BWV 989 og Fantasíu í c-moll BWV 919.
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Heyri ég í hamrinum, lag Jóns Björnssonar við ljóð Kjartans Ólafssonar. Ólafur Þ. Jónsson, tenór syngur, með leikur Ólafur Vignir Albertsson á píanó. Hljóðritunin var gerð 5. júlí 1972.
Veislan á Sólhaugum (1943), leikhústónlist eftir Pál Ísólfsson, samin fyrir uppfærslu á samnefndu leikriti eftir Henrik Ibsen. Þættir verksins eru eftirfarandi:
1. Forleikur
2. Brúðkaupsmars
3. Halling
4. Bergbúinn
5. Marica funèbre
Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Rumons Gamba. Hljóðritun fór fram í Eldborg Hörpu 13.-15. júní árið 2022. Útgefið á plötunni Icelandic works for the stage 2023.
Man ég enn menjalundinn eftir Gabríellu Snót Schram. Textinn er þjóðvísa, úr þjóðsögu. Kammerkórinn Huldur syngur, stjórnandi er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Útgefið á plötunni Í fossgljúfri, 15. maí 2026.
Píanósónata nr. 30 í E-dúr, op. 109 eftir Ludwig van Beethoven.
Þættir verksins eru:
I Vivace ma non troppo - Adagio espressivo
II. Prestissimo
III. Andante molto cantabile ed espressivo
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið á plötunni Opus 109 árið 2025.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag.
Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan.
Tónlist í þættinum í dag:
Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson)
Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. Með lífið í lúkunum er Átak til að vekja athygli á þessu og Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, kom til okkar.
Á dögunum fengum við fréttir af þjónustuvélmenni sem hefur tekið til starfa á hjúkrunarheimili í höfuðborginni. Vélmennið fer á milli borða í matsalnum í þeim tilgangi að létta á starfsfólki þegar leirtau er tekið af borðum. En hvernig fórum við úr því að láta lítil vélmenni ryksuga heimili okkar í að þau byrji taka af borðum? Og hvað gerist næst? Arnór Hreiðarsson er vélmennabóndi eigandi Gengils og kom til okkar í spjall.
Axlaskjól í íslensku fánalitunum sem Jökull í Kaleo klæddist á stórtónleikum á Þingvöllum á laugardagskvöld hefur vakið mikla athygli. Jökull gaf frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, axlaskjólið eftir tónleikana en eftir stendur gríðarleg umræða á samfélagsmiðlum og helst inni í Facebook-hópnum handóðir prjónarar. Prjónakonan Guðrún Jónína Magnúsdóttir á heiðurinn á axlaskjólinu en hún hefur prjónað fyrir Kaleo áður. Guðrún kom til okkar í prjónaspjall.
Í dag eru 10 ár frá því Bretar kusu sig út úr Evrópusambandinu. Keir Starmer hefur tilkynnt afsögn sína sem leiðtogi Verkamannaflokksins. Hann gegnir embætti forsætisráðherra þar til nýr leiðtogi Verkamannaflokksins verður valinn. Andy Burnham, nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins í Makerfield-kjördæminu, hefur staðfest framboð sitt til leiðtoga Verkamannaflokksins. Allt stefnir í að hann verði næsti forsætisráðherra Bretlands. Bogi Ágústsson rýndi í stöðuna sem er komin upp með okkur.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Þessi þáttur var góður kokteill af frábærri tónlist og mis mikilvægum upplýsingum. Aðal atriðið var auðvitað Þriðjudagsþemað. Hafdís íbúi Reykjanesbæjar hringdi inn og vildi fá þema sem lofar lífið. Það fékk hún sannarlega.
Lagalisti þáttarins:
GÓSS – Sólarsamba
THE CURE – Just Like Heaven
THE CARDIGANS – Erase/Rewind
NANCY SINATRA – Sugar Town
NÝDÖNSK – Fullkomið farartæki
THE VERVE – Drugs Don't Work
ROYEL OTIS – Moody
MADONNA – Holiday
KAKTUS EINARSSON – Glycerine
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, GDRN – Manstu
RÚNAR JÚLÍUSSON – Söngur Um Lífið
BOB LUMAN – Let?s think about living (söngur um lífið)
SUPERGRASS – Kiss Of Life
MODEL – Lífið er lag
IGGY POP – Lust For Life
LENNY KRAVITZ – Life Ain't Ever Been Better Than It Is Now
BILLY JOEL – My life
KURT VILE – Life Like This
KK – Lífið er
THE BEATLES – In My Life
MAGNÚS OG JÓHANN – Ástin og lífið
NOAH AND THE WHALE – L.I.F.E.G.O.E.S.O.N.
DIRE STRAITS – Walk Of Life
HREIMUR, MAGNI, BERGSVEINN OG GRETTISKÓRINN – Lífið er yndislegt
BIRGITTA HAUKDAL, HERRA HNETUSMJÖR – Flugeldar (Þjóðhátíðarlag 2026)
THE WHITE STRIPES – Seven Nation Army
THE KINKS – Sunny Afternoon
PAVEMENT – Cut Your Hair
THE HOUSEMARTINS – Build
HIPSUMHAPS – Meðal mannsins (þjóðsöngurinn)
THE VELVET UNDERGROUND – Rock & Roll
KINGFISHR – Killeagh
THE BLACK CROWES – Hard To Handle
DAFT PUNK – One More Time
DURAN DURAN – Girls on film
STEINUNN JÓNSDÓTTIR – Spóla til baka
GARBAGE – Stupid girl
VALDIMAR – Karlsvagninn
STEPHEN SANCHEZ – CHUCK THE MONEY
OLIVIA DEAN – So Easy (To Fall In Love)
PAUL SIMON – Diamonds On The Soles Of Her Shoes



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Rauð viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna hitabylgjunnar sem gengur yfir vesturhluta álfunnar og er í gildi í fimmtán borgum á Ítalíu, og víða á Spáni og í Frakklandi. Í Madrid er búist við fjörutíu stiga hita síðdegis.
Milljarða uppbygging gagnavers Borealis á Blönduósi býr til 150 störf á framkvæmdatíma. Borealis og Landsvirkjun kynntu nýjan samning um kaup á raforku í dag.
Vinnsla er hafin í hvalstöðinni í Hvalfirði eftir þriggja ára hlé. Skiptar skoðanir eru um ágæti og tilgang hvalveiða.
Áratugur er síðan Bretar kusu að fara úr Evrópusambandinu. Meirihluti ungra Breta telur að Brexit hafi mislukkast og vill aðra þjóðaratkvæðagreiðslu.
Franskir ferðamenn, sem voru sektaðir fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina, höfðu verið gripnir við iðjuna áður og fengið tiltal landvarða en létu sér ekki segjast.
Kyrkingar í kynlífi eru orðnar algengari en áður, segja samtök gegn kynbundnu ofbeldi. Mörgu ungu fólki finnst ofbeldisfullt kynlíf sjálfsagt vegna þess að það sést í klámi.
Fresta varð leik Frakka og Íraka á heimsmeistaramótinu í fótbolta í hálfleik í gærkvöldi vegna þrumuveðurs. Eftir rúmlega tveggja klukkustunda bið var leik haldið áfram á rennblautum velli.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Margrét Erla Maack sat við hljóðnemann. Gróa á plötu vikunnar, Drop P, og afmælisbörn dagsins komu úr ýmsum áttum. Spilað var viðtalsbrot við David Byrne úr Rokklandi.
Stuðmenn – Manstu ekki eftir mér?
Dusty Springfield – Son of a Preacher Man
KK & Emmsjé Gauti – Þúsund fleiri ár
Quarashi – Mess It Up
Brigitte Calls Me Baby – I Can Take the Sun Out of the Sky
Retro Stefson – Glow
Brynja Rán Eiðsdóttir – Cowboy Wannabe
Blur – Charmless Man
Kaktus Einarsson – Glycerine
Olivia Rodrigo – good 4 u
Yeah Yeah Yeahs – Heads Will Roll
Fleetwood Mac – The Chain
Marsibil – Allir slakir
Nýdönsk – Ekkert mál
Noah Kahan – The Great Divide
Ásgeir Trausti Einarsson – Ferris Wheel
Björgvin Halldórsson – Himinn og jörð
St. Paul & The Broken Bones – Sushi and Coca-Cola
Botnleðja – Rassgata 51
Botnleðja – Þið eruð frábær
Botnleðja – Heima er best
Mugison – Kúrekinn (Ég trúi á lygina)
Dua Lipa – Dance the Night
Una Torfadóttir & Elín Hall – Bankastræti
Geirfuglarnir – Byrjaðu í dag að elska
Dr. Gunni og vinir hans – Gubbuhesturinn
FM Belfast – I Don't Want to Go to Sleep Either
Gróa – Birdshit
The Stranglers – Let Me Down Easy
CeaseTone – Á tónaflóði
sombr – 12 to 12
Tómas R. Einarsson & GDRN – Pínu sein
Flís & Bogomil Font – Fögur víf
Bryan Adams – Heaven
MT Jones – I Don't Understand
Birgitta Haukdal & Herra Hnetusmjör – Flugeldar (Þjóðhátíðarlag 2026)
Páll Óskar Hjálmtýsson & Benni Hemm Hemm – Eitt af blómunum
Duffy – Mercy
Suede – Beautiful Ones
Birnir & GDRN – Vilt fá
Sia – Chandelier
The Chemical Brothers – Go
Árný Margrét – In a Dream
Bad Bunny – DtMF
Bethany Cosentino & Weezer – Go Away
Malen Áskelsdóttir – Ready Now
Paul Simon – You Can Call Me Al

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.
Stuðið á HM heldur áfram. Við heyrðum í Helga Hrafni Guðmundssyni, sem búsettur er í Porto í Portúgal, og fengum aðeins að heyra frá stemningunni þegar tæpur klukkutími var í leik Portúgala gegn Úsbekistan.
Við fengum póstkort frá Ísafirði. Í dag var það bæjarstjóraröltið, sem verður vikulega hjá okkur í sumar. Steiney hitti Gylfa Ólafsson, sem tók nýverið við sem bæjarstjóri, og fékk hann til að segja okkur frá kirkjunni á Ísafirði.
Fornleifauppgröftur í Stöð á Stöðvafirði sýnir að landnámið á sér forsögu. Þar hafa fundist dýrmætar minjar og er talið líklegt að þangað hafi komið höfðingjar frá Noregi á ríkulegum skipum. Þrír skálar hafa komið í ljós, tveir eru fullrannsakaðir en sá þriðji er enn til rannsóknar og veldur hann heilabrotum. Hann er hugsanlega næst elsta húsið sem rannsakendur hafa fundist. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur mun í haust gefa út bók um útstöðvarfasann í Stöð og útrás víkinga út á Norður-Atlantshafið. Hann var á línunni.
Náttúrufræðistofnun, Matvælastofnun og Keldur fylgjast í sumar með mögulegum smitferjum hér á landi, það eru moskítóflugur, mítlar og lúsmý. Þessi agnarsmáu dýr geta borið örverur frá einum smituðum einstaklingi til annars. Eftirlitið er ekki síður mikilvægt í ljósi þess að moskítóflugur fundust í fyrsta sinn hér á landi síðasta haust. Matthías Svavar Alfreðsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, sagði okkur betur frá þessu.
Hitabylgja gengur yfir stóran hluta Evrópu, og er ástandið einna verst í Frakklandi þar sem yfirvöld hafa gefið út rauða veðurviðvörun. Óttar Kolbeinsson Proppé, verkefnastjóri hjá Almannarómi, er úti í Frakklandi. Hann hefur reynt að flýja mesta hitann og fór því til Arcachon, rétt utan við Bordeaux. Óttar sagði okkur frá ástandinu úti.
Fréttir
Fréttir
Hitamet féllu víða um Evrópu í dag. Rauði krossinn varar fólk við og segir hitann stofna mannslífum í hættu.
Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst hótun í gegnum Neyðarlínuna í nótt um að sprengibúnaði hefði verið komið fyrir í öðru hvalveiðiskipa Hvals hf. og að hann yrði virkjaður ef skipin héldu aftur til veiða, lögregla rannsakar málið en telur hótunina ekki trúverðuga.
Brýn samgönguverkefni á Austurlandi sem vilyrði var fyrir hafa verið slegin af eða færð aftar í samgönguáætlun - Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann, segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Samhjálp fær ekki að opna kaffistofu við Grensásveg 46.
Opnun sendiráðs á Íslandi er í forgangi hjá spænskum stjórnvöldum, segir utanríkisráðherra Spánar. Íslensk stjórnvöld opnuðu sendiráð í Madríd í fyrra.
Portúgalinn Cristiano Ronaldo varð í dag fyrsti leikmaðurinn til að skora mark í sex lokamótum HM í fótbolta.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Á aukabúnaðarþingi sem haldið verður 14. ágúst taka bændur afstöðu til Evrópusambandsaðildar - ekki til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem verður síðar í ágúst, segir Trausti Hjálmarsson, formaður samtaka þeirra.
Rauð, appelsínugul og fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna steikjandi hita og fólk drukknar þegar það reynir að kæla sig. Í Frakklandi hafa að minnsta kosti fjörutíu drukknað í ám og vötnum undanfarna daga.
Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann í nýrri samgönguáætlun að mati Ragnars SIgurðssonar, formanns Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Brýn samgönguverkefni sem vilyrði var fyrir hafi ýmist verið slegin af eða færð aftar í áætluninni.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Ásgeir Trausti - Skýjaborg.
Fleetwood Mac - Landslide.
KK, Emmsjé Gauti - Þúsund fleiri ár.
THE CRANBERRIES - Linger.
Taylor Swift - I Knew It I Knew You.
THE STREETS - Dry Your Eyes.
Þormóður, Huginn, Úlfur Úlfur Hljómsveit - Meira.
Marsibil - Allir slakir.
Steingrímur Karl Teague, Offbít - Senn lendi ég.
Birnir, GDRN - Vilt fá.
Birna Eyfjörð - Leiddu mig.
Anderson .Paak, Alissia - Can't Get Enough
Kanye West- Touch the sky.
Vince Staples - White Flag.
Dominic Fike - Babydoll.
Mind Enterprises - Negroni Love.
SOFT CELL - Tainted Love.
Calvin Harris, Jazzy - Satisfy.
Hjálmar - Hvað gera fjöllin?.
KÖTT GRÁ PJE og NOLEM - Aheybaró.
Kaktus Einarsson - Glycerine.
sombr - Potential.
Klangkarussell - Sonnentanz
Anya Hrund Shaddock - Ég sver.
Bonobo - Me And You.
Madonna - Love Sensation (Radio Edit).
Purple Disco Machine - Disco Cherry.
Árný Margrét - In a dream.
Nói Klose - Heyrir þú í kallinu.
Cigarettes After Sex - Twizzler.
Westside Cowboy - Kick Stones (The Boys).
Geese - Cobra.
Getdown Services - I Can't Die Like That.
White, Jack - Dollar Bill.
Dark Clouds, The, Johnny Blue Skies - Situation.
L7 - Pretend we're dead.
Blondshell - Heart Has to Work So Hard
Aphex Twin - Blackbox Life Recorder
Blood Orange - Essex_Honey.mp3
Boards of Canada - Naraka
Lola Allen - From Down Here
Malen - Ready Now
Charli XCX - SS26
Ariana Grande - Hate That I Made You Love Me
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson