Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Rætt var um almyrkvann á miðvikudaginn í þættinum. Andrés Ingi Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, lagði fram tvær fyrirspurnir til ráðherra varðandi almyrkvann í janúar 2024. Hann spurði um ráðstafanir sem stjórnvöld hygðust grípa til.
Við ræddum um veðrið á miðvikudag við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing, sem er bjartsýnn á veðrið, og svo við Runólf Þórhallsson, yfirlögregluþjón almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra.
Í síðasta hluta þáttarins ræddum við um þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan við Huldu Þórisdóttur, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Við töluðum um umræðurnar, skautun og um það hvað sé líklegt til að hafa áhrif á afstöðu fólks til ESB atkvæðagreiðslunnar.
Tónlist:
Helena Eyjólfsdóttir, Hljómsveit Ingimars Eydal - Skín sól.
Gunnar Gunnarsson - Misty.
Mamas and Papas - Monday, Monday.
David Byrne - Everybody Laughs.
Talking Heads - Psycho killer.
Willie Nelson og Norah Jones - Here we go again.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Allskonar söngvar þar sem sumarið kemur við sögu með einum eða öðrum hætti. Ásgeir Trausti flytur lag sitt Sumargestur, Þorvaldur Davíð Kristjánsson flytur eigið lag sem heitir Sumarsaga og félagarnir Stebbi og Eyfi syngja Í sól og sumaryl. Herbert Guðmundsson flytur útfærslu sína á laginu Sumarið er stutt, sem er sænskrar ættar, Salka Sól syngur eigið lag Sólin og ég og Jón Jónsson og KK flytja lagið Sumarlandið. Haraldur Reynisson eigið lag og texta sem heitir Sumarið okkar, Öystein Magnús Gjerde flytur lag sitt Kæra sumarfrí, Anna María Björnsdóttir og Svavar Knútur flytja lag Önnu Maríu sem heitir Sumarnótt í Þórsmörk og að lokum flytja Una Torfa og CeaseTone lagið Þurfum ekki neitt. Umsjón: Jónatan Garðarsson


Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Stóðum tvö í túni. Þjóðlag í útsetningu eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Textinn er úr Víglundarsögu. Schola Cantorum syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Harmonikukonsert eftir FinnKarlsson. Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmónikuleikari leikur einleik með Kammersveitinni Elju. Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar.
Verkið er í sjö köflum:
I Draumur um flug
II Einn og svo
III Þráður
IV Tveir og svo
V Draugur Bontempis
VI Þrír og svo
VII Og svo framvegis
Söngur án orða, op. 62 nr. 1 eftir Felix Mendelssohn í umritun fyrir fiðlu og píanó eftir Fritz Kreisler. Vilde Frang leikur á fiðlu og José Gallardo á píanó. Hljóðritunin kom út 2017.
Assai tranquillo í h-moll, MWV Q 25 (Albumblatt) eftirr Felix Mendelssohn. István Várdai leikur á selló og Julien Quentin á píanó.
Píanósónata nr. 18 í Es-dúr (Veiðin) eftir Ludwig van Beethoven.
I. Allegro
II. Scherzo. Allegretto vivace
III. Menuetto. Moderato e grazioso
IV. Presto con fuoco
Yuja Wang leikur einleik á píanó.
3. þáttur, Allegretto úr Tríói í B-dúr, K.502 (1786) eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Augustin Dumay leikur á fiðlu Jian Wang leikur á selló og Maria João Pires leikur á píanó. Hljóðritunin kom út 1997.
3. Þáttur, Allegretto poco scherzoso: Amabile úr Sónötu nr. 1 í g-moll eftir Eugène Ysaye. Sólveig Steinþórsdóttir leikur einleik á fiðlu. Hljóðritunin kom út 2023.
Heylóarvísa eftir Atla Heimi Sveinsson (Úr Jónasarlögum). Ljóðið orti Jónas Hallgrímsson. Francisco Javier Jáuregui útsetti. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran syngur, Francisco Javier Jáuregui og Pétur Jónasson leika á gítara. Hljóðritunin kom út 2024.

Enginn módernismi án lesbía fjallar um hin oft gleymdu áhrif sem bandarísku lesbíurnar Gertrude Stein og Sylvia Beach höfðu á mótun módernismans í París snemma á 20. öld.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.
Gertrude Stein var einn af brimbrjótum módernismans í bókmenntum og markaði einnig djúp spor í blómstrandi listalífi Parísar. Hún kom sér upp einkasafni af verkum eftir listamenn sem að áttu eftir að marka þáttaskil í listasögunni og hefur vinnustofa hennar verið kölluð fyrsta móderníska listasafnið.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Skáldsögur Halldórs skoðaðar, lýsingar hans á tárum,
sem einkennast af miskunnarleysi og samúð í senn.
Umsjón: Elísabet Jökulsdóttir.
Lesari er Þröstur Leó Gunnarsson.
(frá árinu 2002)


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Hljóðritun frá lokatónleikum Reykholtshátíðar sem fram fóru í Reykholtskirkju í Borgarfirði 26. júlí sl. þar sem flytjendur hátíðarinnar komu fram í fjölbreyttri dagskrá.
Á efnisskrá:
-Sönglög og aríur eftir Paolo Tosti, Jules Massenet, Gustav Mahler og Gioachino Rossini.
- Strengjasextett í B-dúr, op. 18 eftir Johannes Brahms.
Flytjendur:
Söngvararnir Kristinn Sigmundsson, Jóhann Kristinsson og Arnheiður Eiríksdóttir, Mathias Halvorsen píanóleikari, fiðluleikarararnir Joaquin Páll Palomares og Pétur Björnsson, víóluleikararnir Þórunn Ósk Marinósdóttir og Guðbjartur Hákonarson og sellóleikararnir Sigurgeir Agnarsson og Sigurður Bjarki Gunnarsson.
Umsjón: Pétur Eggertsson.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.

Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.


frá Veðurstofu Íslands

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Evrópumótið í frjálsíþróttum hefst í Birmingham á Englandi í dag og stendur mótið yfir dagana 10. - 16. ágúst. Ísland á átta keppendur og RÚV sýnir beint frá öllum mótshlutum. Við heyrðum í manninnum sem allt veit um frjálsar íþróttir - geitinni Sigurbirni Árna Arngrímssyni sem mun koma sér fyrir í hljóðstofu RÚV á Akureyri næstu daga og lýsa mótinu.
Okkar maður Sævar Helgi Bragason hefur í nógu að snúast þessa dagana enda styttist í stóru stundina en nú erum bara rúmir tveir sólarhringar í almyrkva á sólu. Sævar Helgi kom til okkar og við tókum sólmyrkvann allar 360 gráðurnar.
Enginn munur er á fjölda þeirra sem hyggjast segja já og þeirra sem ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið 29. Ágúst. Þetta sýna niðurstöður Gallup-könnunar sem birt var fyrir helgi og gerð var fyrir hreyfinguna Áfram Ísland. . Hart er tekist á á öllum vígsstöðvum og mikill hiti hefur færst í umræðuna og svo virðist sem þjóðin sé klofin í tvennt. Við ræddum þessi mál strax að loknum átta fréttum við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor sem skrifaði á dögunum grein í Heimildina sem bar yfirskriftina: Um hvað snýst málið eiginlega? Og það er einmitt það sem við hér í Morgunútvarpinu leitum svara við.
Mikil aukning varð á útköllum hjá Landhelgisgæslunni í sumar og að sögn yfirflugstjóra gæslunnar Sigurðurðar Heiðars Wiium þyrfti að tvöfalda flota hennar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti að vera. Við ræddum stöðu Landhelgisgæslunnar, sumarið og verkefnin við Sigurð Heiðar í þættinum.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Tónlist að hætti hússins.