18:00
Kvöldfréttir útvarps
Banaslys norðan Vatnajökuls, fjölgun tilkynninga um mansal og illviðri víða um land

Fréttir.

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls. Hópur sem var með honum fékk áfallahjálp á Akureyri í nótt.

Tilkynningum vegna gruns um mansal og lögreglurannsóknum vegna slíkra mála hefur fjölgað hér á landi. Breskur sérfræðingur telur Ísland standa á mikilvægum tímamótum þar sem unnið er að fyrstu landsáætluninni gegn mansali.

Viðvaranir eru í gildi víða um land vegna hvassviðris, storma og skriðuhættu. Þrátt fyrir mikið hvassviðri hafa útköll björgunarsveita aðeins verið þrjú í dag.

Ísraelskt landtökufólk veittist að bílalest evrópskra embættismanna á Vesturbakkanum í dag – degi eftir að hópur landtökufólks réðst á bandaríska blaðakonu.

Hundrað ár eru liðin frá stofnun Ísaksskóla og var afmælinu fagnað í dag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
    ,