Grísk orð í íslensku
Gríska er án efa það tungumál sem er einna gjöfulast á orðaforða sinn. Orð af grískum uppruna eru hluti af orðaforða fjölmargra tungumála. Þau eru notuð í vísindum og fræðum, menningu…
Gríska er án efa það tungumál sem er einna gjöfulast á orðaforða sinn. Orð af grískum uppruna eru hluti af orðaforða fjölmargra tungumála. Þau eru notuð í vísindum og fræðum, menningu og listum um allan heim og fjöldi þeirra sem hafa orðið að alþjóðlegum hugtökum er ómælanlegur.
Orð af grískum uppruna hafa jafnvel ratað í íslensku, sjaldnast þó beint heldur oftast eftir ýmsum krókaleiðum og í daglegu máli er fjöldi orða sem eru komin úr grísku.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir