Lötrað, labbað, strunsað og strikað
Um algengar athafnir eru oft til mörg orð sem kalla má samheiti en lýsa athöfnunum nánar vegna fjölbreyttra blæbrigða í merkingu. Sagnirnar ganga og tala lýsa einna algengustu athöfnum…
Árni Böðvarsson ræddi í Daglegu máli í febrúar 1955 um eintöluorð eins og fólk, flokkur, fjöldi og þjóð sem hafa fleirtölumerkingu en taka með sér sagnir og ákvæðisorð í eintölu, til dæmis fjöldinn allur af fólki safnaðist saman en ekki söfnuðust saman. Hann ræddi líka um beygingu orðanna gröftur og fiskur og þar má segja að sé fiskur undir steini.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir