Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Verið er að mynda meirihluta í sveitarstjórnum víða um landið þessa dagana. Sums staðar verða stjórnmálamenn, oddvitar, sveitar-, bæjar- eða borgarstjórar. En annars staðar hefur skapast hefð fyrir því að ráða utanaðkomandi sveitarstjóra í vinnu. Hvernig er því háttað og hvaða reglur gilda? Þetta hefur Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri hjá Húnaþingi vestra skoðað vel, og sagði okkur frá.
Þórhildur Ólafsdóttir sagði okkur tíðindi frá Úganda. Við höfum undanfarið heyrt af spillingu og afleiðingum hennar í lögreglu- og dómskerfinu. Í dag heyrðum við af spillingu í pólitíkinni. Við ræddum líka um Ebólu sem hefur greinst á nýjan leik í Úganda eins og á fleiri stöðum í Afríku.
Meirihluti Eyjamanna samþykkti í íbúakosningu að kannaður verði möguleikinn á uppbyggingu á svæði sem fór undir hraun í gosinu fyrir rúmum fimmtíu árum. Við forvitnuðums um þau mál og ræddum líka um samgöngumálin og erfiðleikana sem þeim vandræðum tengjast með Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.
Tónlist:
Johnny Nash - I can see clearly now.
Cesaria Evora - Sodade.
Mugison, Blúskompaníið - Ég trúi á þig.

07:30

08:30
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Sigrún er krafturinn á bak við Korda Samfónía- hljómsveitina sem er samsett af fólki úr öllum áttum sem eiga það sameiginlegt að vera að glíma við einhvers konar áskoranir.
Sigrún býr og starfar í London.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og sagði frá.
Við fræddumst svo um íslenska refinn í dag en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað tófuna um árabil og á næstunni verður haldið málþing á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem verður einmitt rætt um íslenska refinn, sérstöðu stofnsins, svipgerðir, erfðafræði og fleira. Ester sagði okkur frá refnum og málþinginu í dag.
Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, en í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að góðgerlar sem finnast í kimchi geti hjálpað til við að losa líkamann við nanoplast.
Tónlistin í þættinum:
Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson)
Í sól og sumaryl / Stebbi & Eyfi (Gylfi Ægisson)
Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Stýrivextir voru hækkaðir úr 7,5 prósentum í 7,75 í morgun. Þetta er önnur hækkunin í röð. Aðilar vinnumarkaðarins óttast að vextir haldi áfram að hækka.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins sér ekki fram á viðræður um meirihluta við aðra flokka en Miðflokkinn, Viðreisn og Framsókn. Í Hafnarfirði byrjuðu í morgon formlegar viðræður um meirihluta Framsóknar og Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðisflokknum er hafnað í viðræðum í Fjallabyggð og á Dalvík þar sem þeir hafa verið í meirihluta síðustu ár.
Engar meiriháttar ákvarðanir virðast hafa verið teknar á leiðtogafundi forseta Kína og Rússlands í Beijing, en búist var við því að Rússar myndu nota fundinn til að þrýsta á um aukinn útflutning á gasi til Kína.
Síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er á dagskrá Alþingis í dag að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Lokun þjóðvegar eitt vegna viðhalds við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur áhrif á ferðaþjónustuna - sem hefði viljað að verkið yrði unnið hraðar.
Sólin skín á suðvesturhorni landsins. Gestir Sundhallarinnar í Reykjavík geta notið hennar á nýjum sólbaðssvölum.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Þýska stórfyrirtækið Altano keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi.
Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Altano á í dag meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn. Fyrirtækið er í eigu svissnesks fjárfestingarsjóðs.
Af hverju hefur Altano áhuga á Íslandi og dýraspítölum á Íslandi? Einhverjir bændur á Norðurlandi hafa spurt sig að þessu. Rætt er við dýralækninn Gest Pál Júlíusson um Altano en hann er einn af þeim dýralæknum sem hefur selt hlut sinn í dýraspítala til þýska fyrirtækisins.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði.
Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er að gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými.
Viðmælendur: Þröstur Ólafsson, Björk Óladóttir, Kristín Karlsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Alina Streza, Gauti Már Rúnarsson og Ida Semey.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu, tónsmið og dansara um lífið og listina. Frá klassíkinni yfir í djassinn, trúðinn og leikhúsið.
Tónlistin í þættinum:
Faðmlag - Kristjana og Svavar Knútur
Bye Bye Blackbird - Kristjana og skólafélagar frá Hollandi
Secret Place - Bamabló
Tvö lög úr Bláa hnettinum í útsetningu Eiríks Arnar Stefánssonar í flutningi barnakórs og Stórsveitar Reykjavíkur.
Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist að því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?
Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt að hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir að Gleðibankinn var orðinn að klassík og Perlan að kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og sá elsti 90 og í yngri hópnum er sá elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.
Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)
Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Hver er munurinn á því að alast upp nú og alast upp fyrir 60 árum síðan? Hvað fór fólk á mis við fyrir sextíu árum sem ungt fólk í dag fær að upplifa og öfugt? Hvernig matur var borðaður á Íslandi á fyrri hluta 20. aldar? Hvað er íslenskur matur í dag? Hvernig mat munum við borða í framtíðinni? Í þættinum fáum við að heyra viðmælendur svara spurningum um barnæskuna, leiki, afþreyingu, samskipti og mat í fortíð, nútíð og framtíð. Lesari er Magnús Örn Sigurðsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. október 2011.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Yrsa Roca Fannberg er gestur Víðsjár í dag en hún er tilnefnd til Edduverðlauna sem leikstjóri ársins. Yrsa er fædd í Reykjavík árið 1973 en hefur búið stóran hluta ævi sinnar á Spáni og í Svíþjóð. Hún ólst upp við ferðalög og ævintýri á jafn ólíkum eyjum og Formentera og Flatey, svo forvitni og áhugi á eðli manneskjunnar varð snemma hluti af lífinu. Hún sökk inn heim kvikmyndanna þegar hún var við nám í myndlist í London en eftir að hafa séð verk armenska leikstjórans Harutyun Khachatryan á kvikmyndahátið í Edinborg, þá var ekki aftur snúið. Við tók nám í heimildamyndagerð í Barcelona þar sem hún hóf vinnu við sína fyrstu mynd, Salóme. Myndin átti að vera portrett af móður hennar, veflistakonunni Salóme E. Fannberg, en varð á endanum mynd um samband þeirra mæðgna og um eðli heimildamynda. Árið 2019 kom Síðasta haustið, sem fjallar um síðasta haust ábúenda á afskekktum sauðfjárbæ á Ströndum og í fyrra frumsýndi Yrsa sína þriðju mynd, Jörðin undir fótum okkar. Hún gerist á dvalarheimilinu Grund og fjallar um síðasta æviskeið lífsins. Yrsa hefur starfað á Grund undanfarin 13 ár meðfram því að búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð við Háskóla Íslands.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Drake er hratt og örugglega að jafna sig eftir rappbardagann við Kendrick Lamar fyrir tveimur árum. Í vikunni gaf hann ekki út eina endurkomuplötu heldur þrjár. Friðrik Margrétar Guðmundssson hjálpar okkur að kryfja einn slagara af plötunum þremur, Janice STFU. The Sopranos, Lykke Li og trapp-taktar frá Atlanta eru meðal þess sem poppmeinafræðingurinn veiðir upp úr laginu.
Söngleikurinn Ávaxtakarfan á sér lítinn en harðan hóp erlendra aðdáenda, sem teikna myndir af persónunum, pæla í tónlist og boðskap leikritsins. Fríða Þorkelsdóttir, netblaðamaður Lestarinnar, segir frá.
Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, er í biðröð en veit ekki hvað hann ætlar að gera þegar hann kemst á leiðarenda.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR.
Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands.

frá Veðurstofu Íslands
Tónleikaröðin ECHO Rising Stars er liður í verkefni sem Samtök evrópskra tónleikahúsa standa fyrir og veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum sópransöngkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanóleikarans Kunals Lahiry sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 10. maí 2026.
Yfirskrift tónleikanna er Lafði Lazarus, eftir samnefndu ljóði Sylviu Plath. Ljóðið myndar þráð í gegnum efnisskrána sem teygir sig yfir margar aldir og hverfist um stef á boð við frelsi og jafnrétti.
Efnisskrá:
- Music for a while eftir Henry Purcell.
- I have done it again, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.
- Blondel zu Marien D 626 eftir Franz Schubert.
- Do not stand by my grave and weep eftir Carol Anne McGowan.
- The nose, the eye pits, the full set of teeth?, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.
- Interlude og Being Beauteous úr Les illumintaions eftir Benjamin Britten.
- Náðarstef eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur.
- The fist time it happened I was ten, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.
- Der explodierende Kopf eftir Christian Jost.
- Wasserklavier eftir Luciano Berio.
- Oh, Freedom eftir Shawn E. Okpebholo.
- There is a charge, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann
- By beauteous softness eftir Henry Purcell.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði.
Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er að gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými.
Viðmælendur: Þröstur Ólafsson, Björk Óladóttir, Kristín Karlsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Alina Streza, Gauti Már Rúnarsson og Ida Semey.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og sagði frá.
Við fræddumst svo um íslenska refinn í dag en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað tófuna um árabil og á næstunni verður haldið málþing á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem verður einmitt rætt um íslenska refinn, sérstöðu stofnsins, svipgerðir, erfðafræði og fleira. Ester sagði okkur frá refnum og málþinginu í dag.
Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, en í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að góðgerlar sem finnast í kimchi geti hjálpað til við að losa líkamann við nanoplast.
Tónlistin í þættinum:
Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson)
Í sól og sumaryl / Stebbi & Eyfi (Gylfi Ægisson)
Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Drake er hratt og örugglega að jafna sig eftir rappbardagann við Kendrick Lamar fyrir tveimur árum. Í vikunni gaf hann ekki út eina endurkomuplötu heldur þrjár. Friðrik Margrétar Guðmundssson hjálpar okkur að kryfja einn slagara af plötunum þremur, Janice STFU. The Sopranos, Lykke Li og trapp-taktar frá Atlanta eru meðal þess sem poppmeinafræðingurinn veiðir upp úr laginu.
Söngleikurinn Ávaxtakarfan á sér lítinn en harðan hóp erlendra aðdáenda, sem teikna myndir af persónunum, pæla í tónlist og boðskap leikritsins. Fríða Þorkelsdóttir, netblaðamaður Lestarinnar, segir frá.
Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, er í biðröð en veit ekki hvað hann ætlar að gera þegar hann kemst á leiðarenda.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Fallax er fyrsta íslenska kvikmyndin sem er gerð innan sýndarveruleika. Myndin hefur verið sýnd á fjölda hátíða innan Evrópu á undanförnum mánuðum og í vikunni var tilkynnt að hún taki þátt í keppnisflokki Annecy-hátíðarinnar í júní, sem er ein stærsta kvikmyndahátíð heims tileinkuð teiknimyndum. Ekki er til sýningarstaður sem hentar myndinni hér á landi en aðstandendur myndarinnar eru á bakvið leikjahátíðina Isle of Games í Bíó Paradís um helgina. Nanna Gunnars frá Huldufugli kom til okkar og sagði okkur frá þessu.
Húðsjúkdómalæknar hafa á síðustu árum orðið varir við aukinn áhuga ungra barna á sterkum húðvörum og flóknum húðrútínum. Dæmi eru um að börn í kringum sjö ára aldur beri á sig sterkar húðvörur sem innihalda sýrur og önnur innihaldsefni sem eru þróuð fyrir fullorðna húð.Oft sjá börnin þessar rútínur á TikTok hjá áhrifavöldum þar sem þessum vörum er sérstaklega beint að ungum stúlkum. Dr. Ragna Hlín Þorleifsdóttir, húðsjúkdómalæknir á Húðlæknastöðinni er afar fróð um þessi mál og hún kom til okkar. Hún verður einnig með ókeypis opinn fræðslu í Lyfju Skeifunni fimmtudaginn 21. maí kl. 18.30. Þar fræðir Ragna foreldra og unglinga um húðumhirðu og hvað ber að varast.
Í dag kemur þing saman og ræðir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Minnihlutinn mætir eflaust með kassann úti í umræðurnar eftir góðan árangur í sveitarstjórnarkosningunum um helgina en stjórnarliðar vilja eflaust klára umræðurnar sem fyrst og koma atkvæðagreiðslunni á dagskrá. Til að ræða þetta mættu til okkar Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks er skörp og ófyrirgefanleg ádeila á samtímann þar sem kaldhæðinn húmor og alvörugefni vegast á. Sýningin fer á svið í Háskólabíói í sumar en höfundurinn Einar Baldvin Brimar hefur um árabil einbeitt sér að því að hlúa að og lækna veikgeðja líkama á Landspítalanum en hefur nú ákveðið að segja skilið við læknasloppinn og einbeita sér að langveikasta sjúklingi heilbrigðiskerfisins, þjóðarsálinni. Á meðal leikara í sýningunni eru Gugga í Gúmmíbát en hún hefur hingað til ekki látið til sín taka í leiklistinni. Gugga kom til okkar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Gæðaþrenna vikunnar var af plötunni í Góðu lagi sem HLH flokkurinn gaf út árið 1979, þeirra fyrsta plata. Svo var auðvitað heill hellingur af annari góðri og skemmtilegri tónlist í þættinum.
Lagalisti þáttarins:
UNUN – Lög Unga Fólsins
HLH FLOKKURINN – Riddari Götunnar
LIZZO – Good As Hell
LED ZEPPELIN – D'yer Mak'er
MUGISON – Kúrekinn (ég trúi á lygina)
MICHAEL KIWANUKA – The Rest Of Me
NÝDÖNSK – Frelsið
KK – Kærleikur og tími
TURNSTILE – SEEIN' STARS
THE STROKES – One Way Trigger
AL GREEN – Here I am - Come and take me
BELLE & SEBASTIAN – Another Sunny Day
THE DOORS – Touch Me
KRUMMI – Smile till it ends
HLH FLOKKURINN – Þú ert sú eina
THE CURE – Mint Car
MARK RONSON & LYKKE LI – Late Night Feelings
SONNY & CHER – I Got You Babe
CHER – If I Could Turn Back Time
SYCAMORE TREE – Better call off the search for my soul
LOVERBOY – Turn Me Loose
BIRNIR, GUSGUS – Walk away
GARY NUMAN – Are Friends Electric
AMY WINEHOUSE – You Know I'm No Good
BETHANY COSENTINO, WEEZER – Go Away
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, GDRN – Manstu
HLH FLOKKURINN – Kolbrún
MARS VOLTA – Birthday
THE VELVET UNDERGROUND – Rock & Roll
SOMBR – Potential
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMUR – Svona var lífið
FLOTT – Ég vil vera skvísa
CHICAGO – Saturday In The Park
KACEY MUSGRAVES – Dry Spell
JUNGLE – Busy earnin'
GARBAGE – Stupid girl
EMPIRE OF THE SUN – We Are The People
BUBBI MORTHENS – Við föllum
LANA DEL REY – First Light
BJÖRK OG DAVID ARNOLD – Play Dead

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Stýrivextir voru hækkaðir úr 7,5 prósentum í 7,75 í morgun. Þetta er önnur hækkunin í röð. Aðilar vinnumarkaðarins óttast að vextir haldi áfram að hækka.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins sér ekki fram á viðræður um meirihluta við aðra flokka en Miðflokkinn, Viðreisn og Framsókn. Í Hafnarfirði byrjuðu í morgon formlegar viðræður um meirihluta Framsóknar og Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðisflokknum er hafnað í viðræðum í Fjallabyggð og á Dalvík þar sem þeir hafa verið í meirihluta síðustu ár.
Engar meiriháttar ákvarðanir virðast hafa verið teknar á leiðtogafundi forseta Kína og Rússlands í Beijing, en búist var við því að Rússar myndu nota fundinn til að þrýsta á um aukinn útflutning á gasi til Kína.
Síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er á dagskrá Alþingis í dag að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Lokun þjóðvegar eitt vegna viðhalds við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur áhrif á ferðaþjónustuna - sem hefði viljað að verkið yrði unnið hraðar.
Sólin skín á suðvesturhorni landsins. Gestir Sundhallarinnar í Reykjavík geta notið hennar á nýjum sólbaðssvölum.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Það var sólríkt í Popplandi dagsins, allskonar sólarslagarar í bland við eitthvað annað. Mikið nýtt úr erlendu deildinni, Beta Ey sendi póstkort og sagði frá nýju lagi og hljómsveitin Flott á sínum stað með plötu vikunnar Tuttugu og eitthvað.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.
Grace Jones - Slave to the Rhythm.
Charli XCX - Rock Music.
MÖ, DJ SNAKE & MAJOR LAZER - Lean On.
Empire of the sun - Walking On A Dream.
U2 - In a Life.
Kneecap, Tempest, Kae - Irish Goodbye.
ROSA LINN - SNAP.
Herra Hnetusmjör - Ég myndi líka hata mig.
Flott - 20 og eitthvað.
Joe Frazier - Ég myndi líka hata mig.
Vigdís Hafliðadóttir, Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson - Hvernig ertu?.
Laufey - Madwoman.
CHER - Gypsys, tramps and thieves.
Death Cab for Cutie - Riptides.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
Joy, Vance - Fascination in the Dark.
TÁR, Elín Eyþórsdóttir Söebech - Fucking Run Like Hell.
Chappell Roan - Hot To Go!.
PRINS POLO - Líf ertu að grínast.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
THE CLASH - Train In Vain.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
Lykke Li - Sadness Is A Blessing.
GDRN - Háspenna.
Royel Otis - Moody.
Styles, Harry - American Girls.
Strokes, The - Going Shopping.
Sycamore tree - Forest Rain.
STUÐMENN - Komdu Með.
Johnson, Jack, Gutiérrez, Hermanos - Drink the water.
Fleetwood Mac - Never Going Back Again.
NO DOUBT - Sunday Morning.
Dark Clouds, The, Johnny Blue Skies - Situation.
Snorri Helgason - Torfi á orfi.
Dasha - Austin.
KK - Lífið er.
Mukka - So close.
TRÚBROT - To Be Grateful.
Bubbi Morthens - Við föllum.
JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi.
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll.
Flott - 20 og eitthvað.
Young, Lola - Messy.
Flott - Ég vil vera skvísa.
BILLY IDOL - Eyes Without A Face.
Birnir, GusGus - Walk away.
Jungle - Heavy, California.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fyrir nokkrum vikum fullvissaði veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur, þjóðina um að sumarið kæmi 21. maí. Miðað við veðurblíðuna í dag á vesturhluta landsins var hann með þetta alveg á hreinu. Siggi var á línunni.
Ríflega helmingur kvenna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu samkvæmt nýrri rannsókn Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Þetta eru meðal helstu niðurstaðna rannsóknarinnar Konur í karllægum greinum sem byggir á svörum 222 kvenna innan RSÍ og VM. Til að ræða þessa sláandi tölur kom til okkar formaður Rafiðnaðarsambandsins, Jakob Tryggvason.
Árið 2022 opnaði sýningin ABBA Voyage í London og vakti heimsathygli fyrir byltingarkennda tónleikaupplifun sína. Nú, fjórum árum síðar virðist enn allt vera í fullum gangi og það veit engin betur framleiðandinn Svana Gísladóttir. Við heyrðum í henni um þessa miklu velgengni sýningarinnar og hvort hún hafi á sínum tíma trúað því að verkefnið ætti eftir að verða svona stórt.
Ferðasumarið er framundan og margir vilja ferðast innanlands og til að segja okkur betur af því sem í boði er hjá Ferðafélagi Íslands. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ kom til okkar.
Í sumar verður opnað safn tileinkað Gísla á Uppsölum í Selárdal í Arnarfirði, einum eftirminnilegasta einsetumanni Íslands. Við heyrðum í Kára Schram um verkefnið, uppbygginguna og hvers vegna saga Gísla heldur áfram að heilla þjóðina áratugum síðar.
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, fer fram á Patreksfirði næstkomandi helgi. Þarna kennir ýmissa grasa í íslenskri heimildamyndagerð og svo verða það heiðursgestirnir. Þeir verða kvikmyndagerðarfólk frá heimskauts-nágrannasvæðum okkar á Grænlandi, Færeyjum og Norður héruðum Skandinavíu. Kristín Andrea Þórðardóttir, stjórnandi hátíðarinnar, var á línunni.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR.
Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Valdimar Guðmundsson - Sunny Road
Jack Johnson, Hermanos Gutiérrez - Drink the water.
Big Thief - Simulation Swarm.
Kacey Musgraves - Dry Spell.
Widowspeak - No driver.
MT Jones - I Don't Understand.
Jungle - Heavy, California.
Stephen Sanchez, - CHUCK THE MONEY.
ÚLFUR ÚLFUR - Barn.
Kneecap, Kae Tempest - Irish Goodbye.
Rolling Stones - In The Stars.
Heavy Heavy - Happiness.
Father John Misty - The Payoff
Heavy- How You Like Me Now.
Jack White - G.O.D. And The Broken Ribs.
Johnny Blue Skies - Situation.
Hasar - Nýjasta tíska.
Charli XCX - Rock Music.
Lana Del Rey - First Light.
Madonna - I Feel So Free.
Jon Hopkins, Purity Ring - Breathe this air
Tones and I, FISHER - Favour.
Faithless, Bebe Rexha - New Religion.
Fever Ray, Röyksopp - What Else Is There? [Wh0 Remix].
ANOTR, 54 Ultra - Talk To You.
PinkPantheress - PinkPantheress - Girl Like Me
Royel Otis - Sweet Hallelujah.
Ivar Klausen - Dreamer.
Prefab Sprout - Appetite.
Lucy Dacus - Planting Tomatoes.
Rostam - Back of a Truck.
Spacestation - Loftið.
Iceage - Ember
Modest Mouse - Picking Dragons' Pockets
LCD Soundsystem - Someone Great
Harry Styles - Dance No More
Sombr - Potential
Fred Again, Blessed Madonna - Marea
Calvin Harris, Jazzy - Satisfy
Rudimental - Love You More

Umsjón: Andrea Jónsdóttir.