Víðsvegar

Flakkað um Ólafsfjörð

Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði.

Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými.

Viðmælendur: Þröstur Ólafsson, Björk Óladóttir, Kristín Karlsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Alina Streza, Gauti Már Rúnarsson og Ida Semey.

Birt

20. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsvegar

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.

Þættir

,