Litið yfir farinn veg II
Rifjum upp valin brot úr ferðum Víðsvegar um landið frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.
Í þessum þætti verður farið í Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu í Reykjavík, þar sem við ræðum við fjóra sérfræðinga safnsins, kynnumst starfseminni í gegnum þeirra verkefni og heyrum um helstu áskoranir sem fylgja varðveislu og miðlun á þjóðminjum landsins.
Viðmælendur: Atli Freyr Kristófersson, Ágústa Kristófersdóttir, Helga Vollertsen og Karólína Stefánsdóttir.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.