16:05
Síðdegisútvarpið
Ferðalög innanlands, Gísli á Uppsölum og veðurútlitið í sumar

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Fyrir nokkrum vikum fullvissaði veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur, þjóðina um að sumarið kæmi 21. maí. Miðað við veðurblíðuna í dag á vesturhluta landsins var hann með þetta alveg á hreinu. Siggi var á línunni.

Ríflega helmingur kvenna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu samkvæmt nýrri rannsókn Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Þetta eru meðal helstu niðurstaðna rannsóknarinnar Konur í karllægum greinum sem byggir á svörum 222 kvenna innan RSÍ og VM. Til að ræða þessa sláandi tölur kom til okkar formaður Rafiðnaðarsambandsins, Jakob Tryggvason.

Árið 2022 opnaði sýningin ABBA Voyage í London og vakti heimsathygli fyrir byltingarkennda tónleikaupplifun sína. Nú, fjórum árum síðar virðist enn allt vera í fullum gangi og það veit engin betur framleiðandinn Svana Gísladóttir. Við heyrðum í henni um þessa miklu velgengni sýningarinnar og hvort hún hafi á sínum tíma trúað því að verkefnið ætti eftir að verða svona stórt.

Ferðasumarið er framundan og margir vilja ferðast innanlands og til að segja okkur betur af því sem í boði er hjá Ferðafélagi Íslands. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ kom til okkar.

Í sumar verður opnað safn tileinkað Gísla á Uppsölum í Selárdal í Arnarfirði, einum eftirminnilegasta einsetumanni Íslands. Við heyrðum í Kára Schram um verkefnið, uppbygginguna og hvers vegna saga Gísla heldur áfram að heilla þjóðina áratugum síðar.

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, fer fram á Patreksfirði næstkomandi helgi. Þarna kennir ýmissa grasa í íslenskri heimildamyndagerð og svo verða það heiðursgestirnir. Þeir verða kvikmyndagerðarfólk frá heimskauts-nágrannasvæðum okkar á Grænlandi, Færeyjum og Norður héruðum Skandinavíu. Kristín Andrea Þórðardóttir, stjórnandi hátíðarinnar, var á línunni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,