07:03
Morgunútvarpið
Húðrútína ungmenna,Gugga í gúmmíbát,ESB og Fallax

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Fallax er fyrsta íslenska kvikmyndin sem er gerð innan sýndarveruleika. Myndin hefur verið sýnd á fjölda hátíða innan Evrópu á undanförnum mánuðum og í vikunni var tilkynnt að hún taki þátt í keppnisflokki Annecy-hátíðarinnar í júní, sem er ein stærsta kvikmyndahátíð heims tileinkuð teiknimyndum. Ekki er til sýningarstaður sem hentar myndinni hér á landi en aðstandendur myndarinnar eru á bakvið leikjahátíðina Isle of Games í Bíó Paradís um helgina. Nanna Gunnars frá Huldufugli kom til okkar og sagði okkur frá þessu.

Húðsjúkdómalæknar hafa á síðustu árum orðið varir við aukinn áhuga ungra barna á sterkum húðvörum og flóknum húðrútínum. Dæmi eru um að börn í kringum sjö ára aldur beri á sig sterkar húðvörur sem innihalda sýrur og önnur innihaldsefni sem eru þróuð fyrir fullorðna húð.Oft sjá börnin þessar rútínur á TikTok hjá áhrifavöldum þar sem þessum vörum er sérstaklega beint að ungum stúlkum. Dr. Ragna Hlín Þorleifsdóttir, húðsjúkdómalæknir á Húðlæknastöðinni er afar fróð um þessi mál og hún kom til okkar. Hún verður einnig með ókeypis opinn fræðslu í Lyfju Skeifunni fimmtudaginn 21. maí kl. 18.30. Þar fræðir Ragna foreldra og unglinga um húðumhirðu og hvað ber að varast.

Í dag kemur þing saman og ræðir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Minnihlutinn mætir eflaust með kassann úti í umræðurnar eftir góðan árangur í sveitarstjórnarkosningunum um helgina en stjórnarliðar vilja eflaust klára umræðurnar sem fyrst og koma atkvæðagreiðslunni á dagskrá. Til að ræða þetta mættu til okkar Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks er skörp og ófyrirgefanleg ádeila á samtímann þar sem kaldhæðinn húmor og alvörugefni vegast á. Sýningin fer á svið í Háskólabíói í sumar en höfundurinn Einar Baldvin Brimar hefur um árabil einbeitt sér að því að hlúa að og lækna veikgeðja líkama á Landspítalanum en hefur nú ákveðið að segja skilið við læknasloppinn og einbeita sér að langveikasta sjúklingi heilbrigðiskerfisins, þjóðarsálinni. Á meðal leikara í sýningunni eru Gugga í Gúmmíbát en hún hefur hingað til ekki látið til sín taka í leiklistinni. Gugga kom til okkar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,