07:03
Morgunútvarpið
Inga pirrar kennara,sigurvegari Söngkeppni framhaldsskólanna og unnar matvörur á allra vörum

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, kom víða við í ræðu sinni á þingi Kennarasambandsins í gær við misjafnar undirtektir stéttarinnar. Inga lýsti meðal annars skoðun sinni að nota ætti tölustafi í einkunnagjöf í grunnskólum en ekki bókstafi, eitthvað sem olli Magnúsi Þór Jónssyni, formanni Kennarasambandsins, gríðarlegum vonbrigðum. Í viðtali á Vísi sagði hann áhyggjuefni að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að kasta hlutum til kennara sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá. Magnús Þór kom til okkar í Morgunútvarpið.

Guðjón Þorgils Kristjánsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Háskólabíó um síðustu helgi. Guðjón flutti lagið Strange eftir Celeste en hann söng lagið á íslensku við eigin texta, sem ber heitið „Ég skil ekki neitt.“ Dómnefndina skipuðu Helgi Björnsson, Bríet og Þormóður Egilsson og gilti val þeirra til helmings á móti atkvæðum í sms-kosningu áhorfenda. Guðjón Þorgils á framtíðina fyrir sér og hann renndi við í Morgunútvarpinu.

Okkar maður Einar Örn Jónsson mætti með eldheitan mola úr heimi íþróttanna.

Unnar kjötvörur eru á allra vörum eftir að borgarstjórn samþykkti matarstefnu sem felur í sér að börn fái ekki unnar kjötvörur í mötuneytum leik- og grunnskóla borgarinnar. Er þetta rétt skref eða munu blessuð börnin sakna þess að borða bjúgu? Vorum við að gefa þeim bjúgu yfirhöfuð? Hvaða áhrif hafa bjúgu á börn? Dögg Guðmundsdóttir, klínískur næringarfræðingur frá Nutriment RVK, kom til okkar og við tókum málið allar 360 gráðurnar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,