07:03
Morgunvaktin
Heimsglugginn, dýrtíð og Breiðavík

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Nýjar landsstjórnir hafa verið myndaðar bæði í Færeyjum og á Grænlandi, og hugmyndir eru uppi um að Bandaríkjamenn komi sér á ný upp herstöð í Narsarsuaq á Grænlandi. Þetta var til umræðu í Heimsglugganum með Boga Ágústssyni. Hann ræddi líka um gagnrýni Bandaríkjaforseta á páfann og um minningarstund samfélags gyðinga um helförina hér á landi.

Við fjölluðum um dýrtíð, verðbólgu og vísitölur.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt við Birnu Mjöll Atladóttur, hótelstjóra á Breiðavík, um vorið, sumarið, samgöngur og ferðaþjónustu svo eitthvað sé nefnt. Hún fékk fyrstu bókunina fyrir almyrkvann í sumar fyrir tólf árum síðan.

Tónlist:

Ólafur Vignir Albertsson, Sigurður Björnsson, Kristinn Hallsson - Ég bið að heilsa.

Mannakorn - Garún.

Ragnar Bjarnason - Það styttir alltaf upp.

Tríó Björns Thoroddsen, Andrea Gylfadóttir - Vorvindar glaðir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,