12:42
Þetta helst
Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum stígur fram

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Facebook-færsla eiganda fósturheimilisins Gauksstaða í Garðinum í vikunni reitti nokkra af þeim sem bjuggu á fósturheimilinu sem börn og unglingar til reiði. Eigandi fósturheimilisins heitir Jón Steinar Konráðsson.

Í Þetta helst í dag segir einn maður og tvær konur sem dvöldu á fósturheimilinu frá upplifun sinni.

Einn af þeim var ósáttur við færsluna er Burkni Þór Sveinsson sem bjó á fósturheimilinu þegar hann var 15 til 16 ára gamall á árunum 2011 til 2012. Burkni segir að eini hvatinn sem reki hann áfram sé að barnaverndarkerfið viðurkenni að það hafi skitið upp á bak, eins og hann orðar það, þegar börn voru send í fóstur á Gauksstöðum.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,