23:00
Plata vikunnar
Axel O - Texas Town

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Axel O kynnir nýju plötuna sína, Texas Town. Platan er afrakstur þriggja ára vinnu í Texas og á Íslandi þar sem Axel leitar í sínar eigin minningar og upplifanir af bandarísku suðurfylkjunum. Við heyrum sögur af vindmyllum á bómullarökrum, lífinu á veginum og hvernig hjartað leitar alltaf aftur í country-tónlistina þegar líður á vegferðina. Atli Már settist niður með Axeli þar sem farið var yfir ferilinn, plötuna og margt þar á milli.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 2 mín.
e
Endurflutt.
,