Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti verða flutt tónverk sem snúast um flóttamenn, sum frá allra síðustu árum, en önnur eldri. Af eldri verkum má nefna strengjaverkið „Exil!“ eða „Útlegð“ sem Eugène Ysaÿe samdi eftir að hann flúði heimsstyrjöldina fyrri til Bandaríkjanna árið 1917 og óperuna „The Consul“ (Ræðismaðurinn) sem Giancarlo Menotti samdi árið 1950, en hún fjallar um skrifræðið sem flóttamenn þurfa oft að berjast við. Af yngri verkum má nefna „Fólk fær andlit“ eftir Hildi Guðnadóttur og „Removal and other powers“ eftir William Marsey. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Leikin eru lög með þremur barnakórum frá fyrri tíð. Fyrst syngur kór undir stjórn Guðrúnar Pálsdóttur). Síðan syngja Barnakór Borgarness og Barnakór Barnaskóla Akureyrar, en báðir seinni kórarnir nutu söngstjórnar Björgvins Jörgenssonar.
Einnig er endurfluttur hluti viðtals við Björgvin Jörgensson, kórstjóra, sem Sverrir Kjartansson átti við hann árið 1976. Snýst spjall þeirra um söngför Barnakórs Akureyrar árið 1954 til Noregs.
Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1999)

frá Veðurstofu Íslands.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Plötusnúðar í Harlem um 1980 notuðu plötuklór og aðrar aðferðir til að lengja í tónlistinni. Þannig héldu þeir partíinu gangandi og sköpuðu grunn fyrir rappara til að kveðast á. Hipp-hoppið fæðist og sömpl mæta löngum armi laganna árið 1991.
* Kool Herc, Grandmaster Flash, Bomb Squad / Public Enemy, Dust Brothers / Beastie Boys,
Prince Paul / De La Soul, Biz Markie málsóknin 1991, bricolage
Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir
Organisti og stjórnandi Kórs Langholtskirkju: Magnús Ragnarsson
Graduale Nobili, stjórnandi Sunna Karen Einarsdóttir
Tónlistin í messunni:
Forspil: Eyland- Arngerður María Árnadóttir
Sálmur 719: Á hendur fel þú honum Michael Haydn; Björn Halldórsson
Kórsöngur: Ave Maria / Simon Wawer
Sálmur 571: Leitið Guðs ríkis Karen Lafferty; Jónas Gíslason
Eftir predikun
Kórsöngur: Nunc dimittis / Henry Purcell
Sálmur 630: Heyr, himna smiður / Þorkell Sigurbjörnsson; Kolbeinn Tumason
Kórsöngur: Sanctus / Magnús Ragnarsson
Sálmur 317: Þetta er líkami Krists / John L. Bell; Kristján Valur Ingólfsson
Kórsöngur: Media vita / Karensa Briggs
Sálmur 565: Færðu mér ljósið / Sigurður Flosason; Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Eftirspil: Vera mátt góður / Útsetning: Magnús Ragnarsson
Útvarpsfréttir.
Ísraelsmenn hóta að herja á næsta leiðtoga Írans, sem verður líklega kynntur í dag. Eldar loga í olíubirgðastöðvum í Teheran eftir árásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna í nótt. Íranar gerðu árásir á fimm lönd við Persaflóa.
Lítil virkni og lágt gengi margra félaga er áhyggjuefni fyrir stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði, segir hagfræðingur. Markaðurinn sé daufur og fylgi ekki alþjóðlegum sveiflum.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún segir að það sé tómarúm á vinstri væng íslenskra stjórnmála. VG ætli að svara ákalli um aukna áherslu á náttúruvernd og mannréttindi.
Talsmaður landssambands grásleppuútgerða er afar ósáttur við frumvarp um afnám kvótasetningar á grásleppu. Hann segir málsmeðferðina vera hrafnaspark frá a til ö.
Sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit undrast að til standi að skera ofan af fasteignaskatti sem sveitarfélagið fær af stóriðu og útdeila til annarra sveitarfélaga.
Merktum lunda sem hefur verpt í Vestmannaeyjum skolaði dauðum á land í Portúgal fyrir skemmstu. Hann er einn þúsunda sem hefur rekið á land í Evrópu undanfarnar vikur.
Það hefur verið skíðað og sprett og skransað eftir ísilögðu Mývatni síðustu daga á Vetrarhátíð í Mývatnssveit. Við heyrum af hundasleðakeppni sem stendur sem hæst núna í hádeginu.
Eftir glæstan sigur Íslands á Svartfjallalandi fyrr í vikunni er nú komið að síðari leik liðanna í undankeppni EM kvenna í handbolta. Landsliðsþjálfarinn býst við grimmu liði Svartfellinga á heimavelli.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á 150 ára afmæli talsímans með sögulegri yfirferð. Góðir gestir segja frá fyrstu símunum sem þeir muna eftir og við komumst að því hvernig við fórum frá því að geta bara hringt í næsta herbergi í litlu lófatölvuna sem við þekkjum í dag.
Í þættinum er dregin fram samanburður á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness og öðrum prentuðum heimildum um Jökuldalsheiði frá svipuðu tímaskeiði.
Hjörtur Pálsson les kaflana Rímukveðskapur, Líkmenn, Hörpudagar, Skýjarbrok, Erindagerðir, Trúmál og Blóð í grasi úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness.
Guðrún Birna Hannesdóttir les söguna Í Steinþórsbýlum úr Völuskjóðu og kaflann Aðsókn úr bókinni Vogrek eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur.
Sigþór Marinósson les kaflann Rúnasteinn úr bókinni Austurland - Jökuldalsheiðin og byggðin þar eftir Halldór Stefánsson.
Klemenz Jónsson les kaflana Líki fylgt til legstaðar og Síðasta ferð Þorsteins Sveinssonar úr bókinni Frá Valdastöðum til Veturhúsa eftir Björn Jóhannsson.
Umsjón: Gunnar Valdimarsson
Þátturinn var fyrst á dagskrá 31. júlí 1977.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í þættinum er hægferðug tónlist í aðalhlutverki en hún er eftir Julie Herndon, Rachel Beetz, Sóleyju Stefánsdóttur, Pauline Oliveros og the Deep Listening Band, og Eliane Radigue.
Verk sem leikin eru í þættinum:
Eliane Radigue: Usral og brot úr Occam XXV
The Deep Listening Band: Suiren
Sóley Stefánsdóttir: Harmóník I
Rachel Beetz: Reverb
Julie Herndon: From Nothing
Sóley Stefánsdóttir: Harmóník II; She felt like grieving him og Improvisations
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Eiríkur Hreinn Finnbogason tekur til umfjöllunar bréf frá hlustendum og málfar í blöðum. Í tveimur þáttum af Daglegu máli frá 1956 fjallar hann um orðin kóteletta, þinglesing og augabrún; sagnasambandið kveikja upp; hvor sinn og sinn hvor; sjálfs sín eða síns; og fyrirsögnina Ísinn er kominn á Tjörninni.
Fréttir
Fréttir
Bandaríkjaforseti segist þurfa að samþykkja nýjan leiðtoga Írans, ella endist hann ekki lengi í embætti. Utanríkisráðherra Írans segir flugskeyti þess ekki drífa til Bandaríkjanna, og því þurfi að ráðast á skotmörk í nágrannaríkjunum.
Innviðaráðherra hefur áhyggjur af lækkun hlutabréfaverðs Icelandair. Hann ætlar að funda með forstjóra félagsins.
Evrópusambandið veltir nú upp hvernig koma megi í veg fyrir að ný aðildarríki fari á skjön við gildi sambandsins, ekki síst vegna framgöngu Ungverjalands.
Jafnvel er talið að tugir þúsunda vilji vera í Snæfellsjökulsþjóðgarði við almyrkva á sólu 12. ágúst. Til stendur að loka viðkvæmum svæðum og styrkja innviði.
Austurland á fimmta áratug síðustu aldar. Frásagnir tengdar hernámi Breta þar.
Atburðir sem aldrei liðu úr huga þeirra sem tókust á við lífið í kjölfar þeirra.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Í þessum þætti liggur förin upp á Eskifjarðarheiði og til fjölskyldunnar í Veturhúsum. Fjölskyldu sem vann hetjudáð á dimmri janúarnóttu 1942.
Viðmælendur í þættinum eru: Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson.

frá Veðurstofu Íslands
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Bubbi Morthens - Stúlkan sem starir á hafið.
Einsöngvarakvartettinn, Ólafur Vignir Albertsson - Í fyrsta sinn (Söngur Fríðu).
Helena Eyjólfsdóttir, Þorvaldur Halldórsson - Sumarást.
Randver - Þorravísur.
Hljómsveit Ingimars Eydal - Sumarást.
Djäss - Ný blánar yfir berjamó.
Monkees, The - Daydream believer.
Björgvin Halldórsson - Gullvagninn.
Pálmi Gunnarsson - Það vex eitt blóm fyrir vestan.
Anfinsen, Björn Atle - Ný blánar yfir berjamó.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Von.
Wesseltoft, Bugge, Boine, Mari - Alit alihastá aliha (Blue Shines the Blue).
Víkingur Heiðar Ólafsson - The Well-Tempered Clavier I : Prelude No. 9 in E Major, BWV 854.
Nelsova, Zara, Schneider, Alexander, Gould, Glenn - Piano trio in D major, op. 70 no. 1 "Ghost" : I. Allegro vivace e con brio.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður og spurningahöfundur, var lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Örn Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og/eða höfunda:
Jötunsteinn e. Andra Snæ Magnason
Vegur allrar veraldar e. Sigríði Hagalín
Passíusálmarnir e. Hallgrím Pétursson
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Íran er nú daglega í fréttum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og að þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir heyrði sögu hennar.
Það eru tíu ár um þessar mundir frá því bylgja flóttafólks skall á ströndum og landamærum ríkja Evrópu; hundruð þúsunda voru þá á flótta frá borgarastríðinu í Sýrlandi og ógnarstjórn í öðrum ríkjum í leit að öryggi og betra lífi í Evrópu. Í mörgum ríkjum Evrópu hefur dregið úr samúð almennings með flóttafólki. Koma þeirra er talin vera ein af höfuðástæðum þess að vinsældir harðlínuflokka til hægri hafa aukist á undanförnum árum. Björn Malmquist skoðar þessa sögu með atburði vikunnar til hliðsjónar.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Plötusnúðar í Harlem um 1980 notuðu plötuklór og aðrar aðferðir til að lengja í tónlistinni. Þannig héldu þeir partíinu gangandi og sköpuðu grunn fyrir rappara til að kveðast á. Hipp-hoppið fæðist og sömpl mæta löngum armi laganna árið 1991.
* Kool Herc, Grandmaster Flash, Bomb Squad / Public Enemy, Dust Brothers / Beastie Boys,
Prince Paul / De La Soul, Biz Markie málsóknin 1991, bricolage
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Rætt við Kjartan Má Kjartansson um uppvaxtarárin í Keflavík, störfin við Tónlistakóla Keflavíkur, fararstjórastarfið og Latabæjarverkefnið.
Umsjón: Óskar Birgisson

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Serenade eftir Gustav Mahler. Textana sömdu Tirso de Molina og L. Braunfels. Anne Sofie von Otter mezzósópran syngur, Ralf Gothoni leikur á píanó. Útgefið á plötunni The artist's album 1998.
Sónata fyrir flautu og píanó (Sonate pour flûte et piano) [1956-1957] eftir Francis Poulenc. Mathieu Dufour leikur á flautu og Eric Le Sage á píanó.
Verkið er í 3 þáttum :
1. Allegro malinconico (4,28 míjn.)
2. Cantilena (4,01 mín.)
3. Presto giocoso (3,33 mín.)
Sérénade grotesque eftir Maurice Ravel. Angela Hewitt leikur á píanó. Útgefið á plötunni The complete solo piano music árið 2002.
Variation 13 a 2 Clav. úr Goldberg tilbrigðunum eftir Johann Sebastian Bach í útsetningu kammerhópsins Nevermind. Flytjendur eru Nevermind (Anna Besson, þverflauta ; Louis Creac'H, fiðla ; Robin Pharo, gamba (viola da gamba) ; Jean Rondeau, semall, orgel.
Seredande for Mount Hadley eftir Alois Eberl, Sinfonia de Carnaval leikur, en dúettinn er skipaður þeim Önnu Lang sem leikur á selló og rafhljóð og Alois Eberl sem leikur á básúnu, harmóníku, slagverk, rafhljóð)
Útgefið 2021 á plötunni Sweeping dragon.
Song for Athene eftir John Taverner. Kammerkór Suðurlands syngur undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar. Einsöngvari er Hrjólfur Sæmundsson bassi. Útgefið á plötunni Iepo oneipo = Heilagur draumur árið 2010.
Serenade (1960) eftir Sofiu Gubaidulinu. Mats Bergström leikur á gítar. Útgefið á plötunni Perceptions of time 2007.
Vesperae solennes de confessore í C-dúr, K339 (útdráttur) Grand Piano eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið 2022 á plötunni From Afar.
III. Adagio úr Serenöðu nr. 10 í B-dúr, K.361 Gran Partita eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Flytjendur: Alexei Orgintchouk, stjórnandi, óbó ; Félagar í Concertgebouw Orchestra (Nicoline Alt , óbó ; Olivier Patey, Calogero Palermo, klatínetta ; Hein Wiedijk, Annemiek de Bruin bassetthorn ; Gustavo Núñez, Helma van den Brink, fagott ; Laurens Woudenberg, Fons Verspaandonk, José Luis Sogorb Jover, Jaap van der Vliet, horn · Olivier Thiery, kontrabassi).
Útgefið árið 2020 á plötunni Serenade no.10 in B-Flat Major, K.361 Gran Partita.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og við sögu.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda fór á notalegum nótum af stað inn í þennan sunnudag, spilaði ljúfa tóna og tók upp sveitasímann og heyrði í Elí Þór Vídó austur á landi. Á seinni tímanum kom Ragnheiður Haralds Eiríksdóttir Bjarman í gott spjall.
Lagalisti:
Bubbi Morthends - Allur lurkum laminn.
KK og Bríet - Gleymmérei.
Björgvin Halldórsson og Sigríður Thorlacius - Svarta rósin frá San Fernando.
Valdimar - Tenerife.
KK og Maggi Eiríks - Suður um höfin.
Genesis - That's all.
Ragnheiður Gröndal - Má ég.
Hafdís Huld - Last rays of the sun.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Einbúinn.
Waylon & Willie - If I can find a clean shirt.
Wings - With a little luck.
The Beatles - Do you want to know a secret?
Tómas R. - Dingaling.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Förum víða um heiminn. Snillingurinn Þórir Baldurs heimsóttur, Deildarbungubræður og fleira gott fólk kemur við sögu.
Brimbrot - Kling Klang.
DÁTAR - Leyndarmál.
DONNA SUMMER - I Feel Love.
Júníus Meyvant - Color decay.
Deildarbungubræður - María draumadís.
Deildarbungubræður - Nú er gaman.
Ný dönsk - Óskilamunir
Björgvin Halldórsson - Hvað er ást?
Elly Vilhjálms - Ég vil fara upp í sveit.
Krummi - Smile till its ends.
Cell 7 - It's Complicated.
Þórunn Antonía Magnúsdóttir - Too late.
Jet Black Joe - Won´t Go Back
Van Morrison - Into the mystic
Bubbi Mortens - Sem aldrei fyrr
Gorillaz - The Shadowy Light
Serge Gainsbourg - Requiem pour un con
Harry Styles - Season 2
David Bowie - Memory of a free festival
Quarashi - Tarfur
Bríet - Gleymmérei.
Marvin Gaye - What's Going On.
Útvarpsfréttir.
Ísraelsmenn hóta að herja á næsta leiðtoga Írans, sem verður líklega kynntur í dag. Eldar loga í olíubirgðastöðvum í Teheran eftir árásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna í nótt. Íranar gerðu árásir á fimm lönd við Persaflóa.
Lítil virkni og lágt gengi margra félaga er áhyggjuefni fyrir stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði, segir hagfræðingur. Markaðurinn sé daufur og fylgi ekki alþjóðlegum sveiflum.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún segir að það sé tómarúm á vinstri væng íslenskra stjórnmála. VG ætli að svara ákalli um aukna áherslu á náttúruvernd og mannréttindi.
Talsmaður landssambands grásleppuútgerða er afar ósáttur við frumvarp um afnám kvótasetningar á grásleppu. Hann segir málsmeðferðina vera hrafnaspark frá a til ö.
Sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit undrast að til standi að skera ofan af fasteignaskatti sem sveitarfélagið fær af stóriðu og útdeila til annarra sveitarfélaga.
Merktum lunda sem hefur verpt í Vestmannaeyjum skolaði dauðum á land í Portúgal fyrir skemmstu. Hann er einn þúsunda sem hefur rekið á land í Evrópu undanfarnar vikur.
Það hefur verið skíðað og sprett og skransað eftir ísilögðu Mývatni síðustu daga á Vetrarhátíð í Mývatnssveit. Við heyrum af hundasleðakeppni sem stendur sem hæst núna í hádeginu.
Eftir glæstan sigur Íslands á Svartfjallalandi fyrr í vikunni er nú komið að síðari leik liðanna í undankeppni EM kvenna í handbolta. Landsliðsþjálfarinn býst við grimmu liði Svartfellinga á heimavelli.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Sportrásin í dag.
Gunnar Birgisson hitaði upp fyrir bikarviku blaksambandsins
Bragi Þórðarson og Pétur Jóhann Sigfússon skoðuðu nýtt tímabil í formúlunni
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Einar Örn Jónsson ræddu landsleiki kvenna landsliðsins í handbolta gegn Svartfjallalandi
Adda Baldursdóttir og Albert Ingason ræddu erfiða viku kvennalandsliðsins í fótbolta.
Lagalisti Sportrásarinnar.
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll.
Tame Impala - Dracula.
PLACEBO - Special needs.
Perrie - Woman In Love.
Sade - Paradise.
ÁSGEIR TRAUSTI - Sumargestur.
BECK - Loser.
Mars, Bruno - God Was Showing Off (bonus track).
Warmland - All for All.
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
SCRITTI POLITTI - The word girl.
Spoon - Taboo.
Kahan, Noah - The Great Divide.
sombr - Homewrecker.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
Addison Rae - Headphones On.
Temper Trap, The - Into The Wild.
Hjálmar - Kindin Einar.
Sigur Rós - Hoppipolla.
Valdimar - Tenerife.
Dean, Olivia - Nice To Each Other.
DURAN DURAN - Ordinary World.
Robyn - Talk To Me.
Bríet - Takk fyrir allt.
MADONNA - Take a bow.
Laufey - How I Get.
ROXY MUSIC - More Than This.
Bubbi Morthens, Kristmundur Axel - Kominn heim.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi dagsins/vikunnar kemur Daníel – Danny Pollock í heimsókn, en hann er búin að vera forstöðumaður TÞM Tónlistarþróunarmiðstöðiní meira en 20 ár á Grandanum í Reykjavík. Þar æfa um það bil 40 hljómsveitir alla daga í 15 æfingaherbergjum en nú er uppnám í tónlistarborginni Reykjavík vegna þess að TÞM missir húsnæðið í lok apríl og hvað þá? Við ætlum að spjalla um TÞM og líka gömlu hljómsveitina hans Danna, Utangarðsmenn - og útrásardrauma þeirra sem voru sannarlega til staðar fyrir 45 árum síðan. Og núna fyrir síðustu jól kom plata Utangarðsmanna – Geislvirkir út í viðhafnarútgáfu með aukaplötu sem er öll sungin á ensku.
Europe´s Biggest Gig er sameiginlega útvarpsútsending 5 Evrópskra útvarpsstöðva sem átti sér stað síðasta þriðjudag og gengur út á að kynna nýja tónlist frá þessum 5 sömu löndum fyrir útvarpshlustendum þessarara sömu landa - 5 listamenn/hljómsveitir sem spiluðu LÆV í stúdíóum þessara fimm útvarpsstöðva sem voru BBC Radio One, RTÉ 2 á Írlandi, WDR 1 í þýskalandi og Antenna 3 í Portúgal. Okkar listamaður – þeas okkar Íslendinga og Rásar 2 var Spacestation Hver stöð fékk hálftíma til umráða og við heyrum okkar hluta af þessu prógrammi í Rokklandi.
Fréttir
Fréttir
Bandaríkjaforseti segist þurfa að samþykkja nýjan leiðtoga Írans, ella endist hann ekki lengi í embætti. Utanríkisráðherra Írans segir flugskeyti þess ekki drífa til Bandaríkjanna, og því þurfi að ráðast á skotmörk í nágrannaríkjunum.
Innviðaráðherra hefur áhyggjur af lækkun hlutabréfaverðs Icelandair. Hann ætlar að funda með forstjóra félagsins.
Evrópusambandið veltir nú upp hvernig koma megi í veg fyrir að ný aðildarríki fari á skjön við gildi sambandsins, ekki síst vegna framgöngu Ungverjalands.
Jafnvel er talið að tugir þúsunda vilji vera í Snæfellsjökulsþjóðgarði við almyrkva á sólu 12. ágúst. Til stendur að loka viðkvæmum svæðum og styrkja innviði.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Nýtt efni í bland við eldra og lítum aðeins á árið 2006. Óvænt þema var bönd frá Kaliforníu sem skipuðu stóran sess í þætti kvöldsins
Plata þáttarins er harp, beats & dreams með henni Marysia Osu.
Elín Hall - Rauðir Draumar
Waterbaby - Beck n Call
Gitkin - Night Tripper
The Womack Sisters - If you want me
Ásgeir Ásgeirsson - Cairo Vibe
Jóse Gonzáles - A perfect storm
Okonski - Easy
Tannamu - What made us stay for all this time
Einakróna - Blóðbragðið
Marysia Osu - Care to care
Ezra Collective & Greentea Peng - Helicopters
Árni Vil - Afternoons
Goon - Atrium
Rahil - Futbol
Ora Cogan - Divisions
The Me´s - Oui Oui Oui
The Ruffcats I ain´t worried
Mark Ronson & The Business Intl. - The night last night
Amor Vincit Omnia - Mæta mér
CSS - Let´s make love and listen to death from above
Automatic - Mercury
Flesh Machine - Taking my time
Tirzah - Tectonic
Art Feynman - Can´t stand it
Moonchild - Counting
Litefun - Aldrei
Kraftwerk - Das Model
Mr Little Jeans - Good mistake
The Smile - The smoke
Princess Nokia - Pink Bronco
Lyndi Lin - My name is
Eartheater - Pure smile venom
Plaid - Do matter
Cell 7 - All my friends
Simian Mobile Disco - Hustler
Pigeon - Miami
Cochemea - Dilo
ThorF - Star Ambient
Sofia Isella - Numbers
Marysia Osu - memento mori
Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Lagalisti:
Supersport! - God is Change
Unknown Mortal Orchestra - That life
Holydrug Couple - Concorde
Men I Trust - Hard to Let Go
Slight - The Unspoiled View
Widowspeak - Everything is Simple
JW Francis - Sweet as a Rose
Florry - Take My Heart
Twisted Teens - 100 Bill is Gone
Twisted Teens - Is It Real?
Kóboykex - Midnight Gale
Wet Leg - Davina McCall
Semiwestern - Zero for Conduct, pt2
Angine de Poitrine - Mata Zyklek
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Axel O kynnir nýju plötuna sína, Texas Town. Platan er afrakstur þriggja ára vinnu í Texas og á Íslandi þar sem Axel leitar í sínar eigin minningar og upplifanir af bandarísku suðurfylkjunum. Við heyrum sögur af vindmyllum á bómullarökrum, lífinu á veginum og hvernig hjartað leitar alltaf aftur í country-tónlistina þegar líður á vegferðina. Atli Már settist niður með Axeli þar sem farið var yfir ferilinn, plötuna og margt þar á milli.