07:03
Morgunútvarpið
Fangelsismál á Íslandi,66,línur að skýrast í borginni og hvar er Jón?

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu eru ekki bara íþrótaviðburður heldur líka hálfgerð tískusýning. Vörumerki á borð við Prada, Armani, Nike eru á meðal þeirra sem klæða íþróttafólkið ytra og klæðnaður íslenska liðsins vakti mikla athygli á setningarathöfninni. 66° norður klæddi Íslendingana og gallinn hefur verið áberandi í umfjöllun fjölmiðla um tískuna á vetrarólympíuleikunum. Fannar Páll Aðalsteinsson frá 66 var á línunni.

Afstaða, réttindafélag fanga, kallar eftir því að manni, sem var á Bakkakoti sem barn og situr nú í fangelsi á Spáni, verði gert kleift að ljúka afplánun á Íslandi og fái þá sálfræðiþjónustu og meðferð sem ríkisstjórnin hefur lofað Bakkakotsdrengjum. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir mikilvægt að enginn sé skilinn eftir í þessu máli en bendir á að tilraunir til að fá manninn heim hafi engu skilað. Guðmundur Ingi kom til okkar í Morgunútvarpið.

Oddvitamálin í borginni eru byrjuð að skýrast fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Í vikunni kom í ljós að Ari Edwald leiði lista Miðflokksins en áður varð ljóst að Björg Magnúsdóttir leiði Viðreisn, Hildur Björnsdóttir Sjálfstæðisflokkinn, Pétur Marteinsson Samfylkinguna og Sanna Magdalena Mörtudóttir sameiginlegan lista Vors til vinstri og Vinstri grænna. Við fengum Eirík Bergmann stjórnmálafræðing til að meta með okkur stöðuna.

Sjö árum eftir að Jón Þröstur Jónsson hvarf í Dyflinni, óskar lögreglan enn eftir upplýsingum sem geta komið að gagni. Í frétt RÚV í vikunni var haft eftir Eiríki Valberg rannsóknarlögreglumanni að írska lögreglan hafi tekið málið föstum tökum. Anna Marsibil Clausen hefur rannsakað málið í samstarfi við írska ríkisútvarpið RTÉ og afrakstur þeirrar vinnu var þáttaröðin Hvar er Jón? sem kom út í fyrra. Við fengum Önnu til okkar og spurðum hvað hafi gerst í málinu frá því að þættirnir fóru í loftið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,