19:00
Tónleikur
Jeans Sibelius - Strengjakvartett

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Í síðasta Tónleik var skipt um öld – sú 20. gekk í garð þótt hún færi rólega af stað með síðasta strengjakvartett Carls Nielsens, sem var saminn árið 1906 en endurskoðaður árið 1919. Áframhaldið er líka kliðmjúkt og lítið ögrandi fyrir eyrun, því í þessum þætti verður leikinn síðasti strengjakvartett Jeans Sibeliusar og einn þáttur úr kvartett eftir leynigest, sem þó verður afhjúpaður í lok þáttarins.

Jean Sibelius og Carl Nielsen voru jafnaldrar, báðir fæddir árið 1865, og báðir upphaflega fiðluleikarar, eins og raunar mörg strengjakvartettatónskáld, og báðir sömdu fjóra strengjakvartetta. Carl Nielsen lést árið 1931, 66 ára gamall, en Sibelius varð hins vegar mjög langlífur þrátt fyrir líferni sem ekki var beinlínis heilsusamlegt, en hann varð 92 ára gamall. Sibelius samdi sinn fyrsta strengjakvartett árið 1885 þegar hann var aðeins tvítugur að aldri, og áður en hann hóf tónlistarnám sitt í Helsinki. Næsti kvartett er frá árinu 1889, sá þriðji var saminn í Finnlandi og í Berlin árið 1890 og sá síðasti, op. 56, sá sem við heyrum hér og gengur gjarnan undir nafninu Voces Intimae, var ekki saminn fyrr en nítján árum síðar, árið 1909. Hann var lengi vel eini þekkti strengjakvartett Sibeliusar. Þetta er verk þroskaðs tónskálds og þrátt fyrir meinta íhaldsemi Sibeliusar má glögglega heyra að eitthvað nýtt er hér á ferðinni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 44 mín.
e
Endurflutt.
,