Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir flytur.
Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Guðrún Harðardóttir segir frá skiptinámi í arkitektúr í Portúgal.
Umsjón: Magnús R. Einarsson.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Umsjónarmenn fá gesti í hljóðver sem ræða um sjálfsmynd frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón Gísli Sigurðsson og Ævar Kjartansson.
Fjallað er um það hvernig málið og menningin fléttast saman; hvernig uppruninn, sagan með öllum sínum samskiptum og átökum til okkar daga er fólgin í tungumálunum sem við tölum. Málin geyma fortíðina í sér um leið og þau endurspegla völd og hugmyndir fyrri tíma um hvaðeina; hvað sé jákvætt og rétt og hvernig hlutirnir eigi að vera - þótt við séum alltaf í óvissu um hvort komi fyrst, tungumálið eða samfélagið sem mótar tungumálið. Ótvírætt er þó að við notum tungumálin sem valdatæki í samskiptum kynja, stétta og þjóða. Dæmi um þetta má taka af stjórnmálum og skólum, hvort sem er í samskiptum milli einstaklinga, Íslendinga við fólk af öðrum málsamfélögum eða í átökum stórvelda á alþjóðavísu. Heimurinn sveiflast fyrir áhrif tungumálsins. Enn er það svo að vald yfir orðræðunni færir fólki veraldleg völd og þá ríður á að vera fyrstur að tileinka sér nýja miðla hverju sinni, hvort sem það er smáskeytatíst og aðrir samfélagsmiðlar, raunveruleikasjónvarp, kvikmyndatækni, útvarp, dagblöð, prentaðar bækur, handskrifaðar eða munnlega mælskulistin. Þau sem hafa nýtt sér nýjustu aðferðir hverju sinni við að miðla tungutakinu hafa með því náð að mynda nýja valdahópa sem hafa komist til áhrifa í krafti nýrrar miðlunar.
Veðurstofa Íslands.
Guðsþjónusta.
Prestar: Séra Einar Eyjólfsson og séra Margrét Lilja Vilmundardóttir þjóna fyrir altari og predika.
Tónlistarstjóri: Örn Arnarson.
Fríkirkjukórinn í Hafnarfirði syngur.
Einsöngvarar: Kirstín Erna Blöndal og Bjarni Baldvinsson .
Hljóðfæraleikarar: Skarphéðinn Þór Hjartarson, píanó, Guðmundur Pálsson, bassi, Vigdís Jónsdóttir, harmonika, Gísli Gamm, trommur og Örn Arnarson, gítar.
Fyrir predikun:
Forspil: Er vaknar ást á vori. Lag: Linda S. Prindule. Texti: Linda S. Prindule. Íslenskur texti: Kristján Valur Ingólfsson.
Sálmur 530: Vertu, Guð Faðir, faðir minn. Lag: Thelma Byrd, Texti: Hallgrímur Pétursson.
Kveiktu á ljósi. Lag og texti: Valgeir Guðjónsson.
Sálmur 551: Á hverjum degi, Drottinn minn, ég bið. Lag og texti KK (Kristján Kristjánsson).
Sálmur 261: Drottinn, miskunna, miskunna þú oss. Lag: L.G.M. Kolisi. Texti: Matteus 9.27.
Sálmur 270: Dýrð þér, dýrð þér. Lag og texti: Pablo Sosa. Íslenskur texti: Kristján Valur Ingólfsson.
Kærleikur: Lag: Jóhann G. Jóhannsson. Texti: Páll postuli.
Hallelúja: Lag: John Bell. Texti: Litúrgískur.
Ég trúi á ljós: Skoskt þjóðlag. Texti: Ólafur Gaukur.
Imagine: Lag og texti: John Lennon.
Eftir predikun:
Samferða: Lag og texti: Magnús Eiríksson.
Sálmur 242: Megi gæfan þig geyma. Lag: Nickomi Clarke. Texti: Írsk blessun, þýð. Bjarni Stefán Konráðsson.
Sálmur 562: Þú, Guð, sem stýrir stjarnaher. Lag: William Gardiner. Texti: Valdimar Briem.
Eftirspil: Milda Höndin. Lag: Ron Klusmeier. Texti: Eygló Eyjólfsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Bæjarstjóri Grindavíkur segist eiga von á því að Grindvíkingar fái aukið aðgengi að Grindavík allra næstu daga. Sumum finnst skjóta skökku við að Bláa lónið fái að opna en ekki fyrirtæki í bænum.
Forsætisráðherra Ísraels segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah, þar sem um ein og hálf milljón Gazabúa hafa leitað skjóls. Það væri eins og að gefast upp fyrir Hamas. Svartsýni ríkir meðal Katara, sem farið hafa fyrir viðræðum um vopnahlé á Gaza.
Eigandi leigubílstöðvarinnar þar sem bílstjórinn vann sem grunaður er um nauðgun sendi uppsögn til Samgöngustofu um leið og hann frétti af meintu broti í fjölmiðlum. Bílstjórinn hélt áfram akstri eftir meint brot.
Verði engin loðnuvertíð í vetur myndi það þýða um tvo milljarða króna í töpuðum atvinnutekjum í Vestmannaeyjum, að sögn bæjarstjóra. Bæjarsjóður yrði af allt að 300 milljónum króna.
Íbúar nýs sameinaðs sveitafélags Tálknafjarðar og Vesturbyggðar geta nú stungið upp á nafni á sveitarfélagið. Sveitarstjórinn á Tálknafirði segist viss um að íbúar finni nafn sem sómi verður að.
VÆB og Aníta tryggðu sig inn í úrslit Söngvakeppninnar í gærkvöldi. Sigríður Beinteinsdóttir varð fyrst til að hljóta útnefningu í heiðurshöll keppninnar.
Nú þarf að gera eitthvað. Tröllvaxnar áskoranir blasa við þjóðum heims í umhverfismálum. Klukkan tifar. Loftslagsváin herjar á mannkyn og álagið á náttúruna er komið langt yfir þolmörk. Í þessum þáttum er vandinn skoðaður frá mörgum sjónarhornum: Nokkur grundvallarhugtök umhverfismálanna eru tekin fyrir, sögur sagðar af uppruna þeirra, kafað í gögn og talað við fólk sem lifir og hrærist í umhverfismálum í alls konar geirum samfélagsins. Og síðast en ekki síst: Rýnt í lausnirnar.
Umsjón: Guðmundur Steingrímsson.
Á hverju ári hittast þjóðir heims og ræða árangur, eða ekki árangur, í loftslagsmálum. Er loftslagssamningur Sameinuðu þjóðanna að virka?
Umsjón og dagskrárgerð: Guðmundur Steingrímsson. Ritstjórn og samsetning: Jóhannes Ólafsson.
Þáttaröðin er unnin með styrk úr sjóði Háskóla Íslands um samfélagsvirkni.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Reading the room - The Smile - Wall of Eyes 2024
Reading the air - Jan Bang - Reading the air 2024
Reading of sacred Books- Georg Guirdjeff - Ketith Jarret - Music for the film/sounds and silence 2011
Arch - Vijay Iyer - Compassion 2024
6 feet down - Tara Lily, Theo Croker - 6 feet down 2024
Stand - Elliot Sharp - Arbor 2024
The sun will rise again - Gretchen Parlato/Lionel Loueke - 2024
Mi corazon - Jacob Collier, Camilo - 2024
Andante úr sinfóníu í C - George Bizet - Les Siecles - Mes premieres notes avec maman 2024
Les silence des Sirenes - Unsuk Chin - Barbara Hannigan og Berliner Philharmoniker - 2024
Variatio 15 Canone alla Quinta. A 1 Clav. Andante - Goldberg tilbrigðin - Víkingur H Ólafsson - DG 2023
Central Park West - John COltrane - Joel Ross 2024
Wall of eyes - The Smile - Wall of Eyes 2024
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Greinin Í gömlu Reykjavík birtist í Tímariti Máls og menningar árið 1970. Höfundurinn, Petra Péturdóttir, sagði þar á skemmtilegan hátt frá því hvernig íslenska var töluð í Reykjavík á uppvaxtarárum hennar, svokallað Reykjavíkurmál.
Benedikt Hermannson ræðir við góða gesti um tungumál tónfræðinnar og varpar ljósi á byggingareiningar tónlistarinnar.
Skúli Sverrisson, semur tónlist sem er einföld, skýr og aðgengileg en líka flókin, hulin mysteríu og kemur hlustandanum sífellt á óvart. Hann notar ótal tæki og tól sem hann hefur sankað að sér í sínu starfi sem hljóðfæraleikari í yfir fjóra áratugi, en hann hefur starfað útum allan heim, með þekktasta tónlistarfólki heims. Hann hefur markað sinn eigin hljóðheim, sem einhvernveginn sameinar þetta flókna og það einfalda.
Hægt er að hlusta á lagalista þáttarins á Spotify.
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Guðmundur H. Viðarsson, heimspekingur og menningarmiðlari.
(Áður á dagskrá 2014)
„Maður byrjar á sjálfum sér...“
Hvað er bogið við samræðuhefð á Íslandi? Er annars eitthvað bogið við þá samræðuhefð? Ef eitthvað er að samræðuhefðinni á Íslandi hvernig getum við þá stuðlað að því að hún lagist?
Í þessum þætti er því ferðalagi sem hafið var í 1. þætti haldið áfram og stefnan sett frá samtali við sjálfan sig að samtölum við aðra.
Þáttastjórnandi greinir þrjú samfélagsleg svið þar sem samræður fara fram og ruglar þeim saman í stuttum atriðum. Það leiðir í ljós einkennilegan mun sem greina má á samtölum á hverju sviði fyrir sig. Af hverju hegðum við okkur á svona mismunandi vegu eftir því á hvaða sviði við stöndum?
Lagðar eru til ákveðnar aðferðir til að árangursríkari og eðlilegri samræður geti átt sér stað. Sýnt er fram á að einbeitt notkun á slíkum aðferðum ,sem raunar flestir kunna nú þegar, getur leitt til þess að einstaklingum líði betur og betri andrúmsloft ríki í hverju samfélagi fyrir sig.
Í þættinum er rætt við Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur hjúkrunarfræðing og höfund svokallaðra Samskiptaboðorða.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari og barnabókasafnari. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. María talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Bold fjölskyldan í klípu e. Julian Clary Serótónínendurupptökuhemlar e. Friðgeir Einarsson
Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg e. Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur
Ten Steps to Nanette e. Hannah Gadsby
Backlash e. Susan Faludi
Angry White Men e. Michael Kimmel.
Kapítóla eftir E.D.E.N. Southworth.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Umræðuefni þáttarins eru ör, þessi sem við þekkjum öll á eigin skinni. Þá er kannað hvernig ör verða til og áhrifin sem það hefur að bera ör. Gestur þáttarins er myndlistakonan Herdís Hlíf Þorvaldsdóttir sem hefur skapað áhrifamikið listaverk þar sem ör eru viðfangsefnið. Í þættinum segir Herdís betur frá verkinu, sem ber titilinn Ástarbréf til hörundsins.
Umsjón: Alma Ásgrímsdóttir
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þetta er framhald næsta þáttar á undan og hér segir frá hinni dramatísku atburðarás þegar George Mallory og Andrew Irvine týndust á Mount Everest í byrjun júní 1924. Aldrei hefur orðið ljóst hvort þeir náðu á tindinn og urðu þar með fyrstir til að standa á hæsta stað jarðar. Hvarf þeirra dró mikinn dilk á eftir sér. Hér segir einnig frá þeirri örlagaríku stund þegar lík annars þeirra fannst 75 árum seinna. Hvaða sögu sagði líkið um þeirra hinstu ferð?
Umsjón: Illugi Jökulsson.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Er ég einn um að finnast eins og það sé smá vor í lofti? Það er að minnsta kosti bjartara yfir og andleg líðan þjóðarinnar vonandi á uppleið í samhengi við það. En hvort sem það er sól, snjór, rok eða rigning höldum við áfram með þú veist betur og í þetta skipti er líftækni undir. Ég vil byrja á því að benda á að einn af fyrstu þáttum af Þú veist betur fjallaði um erfðir, í þeim þætti fór ég og hitti á Kára Stefánsson þar sem hann fór yfir þetta allt saman með mér. Hugarefni okkar er auðvitað tengt erfðum en er á sama tíma svo miklu meira. Gestur þáttarins er Eiríkur Steingrímsson sem hefur verið í bransanum lengi, veit meira en flest og ég er ekki frá því að eftir samtal okkar hafi ég verið þokkalega sannfærður um að viðfangsefni þáttarins er nátengt því hvernig við horfum til framtíðar. Við ætlum að fara yfir sögu þessarar greinar, hvernig samkvæmisdans erfðafræði og líftækni er ásamt því auðvitað að horfa til framtíðar og hvað gæti verið handan við hornið.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Farið um hvipp og hvapp í músík og masi. Fyrsta plata Men At Work, Business As Usual, var tekin til kostanna og við kynntum fjöllistamanninum Páli Ivan frá Eiðum sem málar og músíserar í bland. Einnig komu við sögu fólk eins og Aretha Franklin, Ásta, Gus Gus og Ásgeir Trausti svo fáein dæmi séu nefnd.
Undanfarin 30 ár hefur stefna, sem er oftast kölluð „indie folk“ kraumað undir í rokkinu. Sumir vilja meina að hún hafi byrjað með tónlistarmönnunum Elliot Smith og Will Oldham, en hafi virkilega sprungið út síðustu ár með lágstemmdum verkum Taylor Swift og Phoebe Bridger. Þorsteinn Hreggviðsson skoðar þessa tónlistarstefnu á víðum grundvelli.
Lagalistinn
Elliot Smith - Needle In the Hay
Waxahatchee, MJ Lenderman - Right Back To It
Wilco - California Stars
Caroline Polachek ft Weyes Blood - Butterfly Net
Villagers - Everything I Am Is Yours
Maggie Rogers - Don't Forget Me
The Lumineers - Sleep On the Floor
Kacey Musgraves - Deeper Well
Youth Lagoon - Football
Adrianna Lenker - Sadness As a Gift
Smog - Let's Move To the Country
Daughter - Youth
Zach Bryan, Bon Iver - Boys of Faith
Kara Jackson - Pawnshop
Big Red Machine, Fleet Foxes - Phoenix
Lana Del Ray, Father John Misty - Let the Light In
Kurt Vile - Waking On A Pretty Day
Útvarpsfréttir.
Bæjarstjóri Grindavíkur segist eiga von á því að Grindvíkingar fái aukið aðgengi að Grindavík allra næstu daga. Sumum finnst skjóta skökku við að Bláa lónið fái að opna en ekki fyrirtæki í bænum.
Forsætisráðherra Ísraels segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah, þar sem um ein og hálf milljón Gazabúa hafa leitað skjóls. Það væri eins og að gefast upp fyrir Hamas. Svartsýni ríkir meðal Katara, sem farið hafa fyrir viðræðum um vopnahlé á Gaza.
Eigandi leigubílstöðvarinnar þar sem bílstjórinn vann sem grunaður er um nauðgun sendi uppsögn til Samgöngustofu um leið og hann frétti af meintu broti í fjölmiðlum. Bílstjórinn hélt áfram akstri eftir meint brot.
Verði engin loðnuvertíð í vetur myndi það þýða um tvo milljarða króna í töpuðum atvinnutekjum í Vestmannaeyjum, að sögn bæjarstjóra. Bæjarsjóður yrði af allt að 300 milljónum króna.
Íbúar nýs sameinaðs sveitafélags Tálknafjarðar og Vesturbyggðar geta nú stungið upp á nafni á sveitarfélagið. Sveitarstjórinn á Tálknafirði segist viss um að íbúar finni nafn sem sómi verður að.
VÆB og Aníta tryggðu sig inn í úrslit Söngvakeppninnar í gærkvöldi. Sigríður Beinteinsdóttir varð fyrst til að hljóta útnefningu í heiðurshöll keppninnar.
Umsjón: Ýmsir.
Silja Aðalsteinsdóttir er þriðji viðmælandi Steineyjar Skúladóttur í Sunnudagssögum í febrúar þar sem þemað er Rauðsokkur. Silju var boðið á stofnfund Rauðsokkuhreyfingarinnar 1970 en fannst hún ekki eiga heima þar þá. Það var svo 6 árum síðar sem hún fann að tíminn var kominn og gerðist virkur meðlimur. Í þættinum segir Silja frá uppvextinum, árunum í London, ástríðunni fyrir menningu og listum, mikilvægi réttindabaráttu, samstarfinu með Bubba Morthens og fleira og fleira.
Rúnar Róberts í huggulegum helgargír og spyr hvernig var helgin og hvernig verður vikan framundan?
Við heyrðum topplagið í Bretlandi á þessum degi, 18. janúar árið 1982, sem var lagið Town called Malice með The Jam. Hvað um er að vera í vikunni framundan í helstu boltaíþróttunum skoðað. Eitís plata vikunnar var Turn back the clock frá 1988 með Johnny hates jazz. Nýjan ellismell vikunnar átti Roachford. Lagið heitir All The Love We Need. Þá var Eitís 12 tomma vikunnar lagið Freedom (Long mix) með Wham!
Lagalisti:
14:00
Páll Óskar - Elskar þú mig ennþá
Simple Minds - Sanctify yourself
Sophie Ellis-Bextor - Murder On The Dancefloor [PNAU Remix]
The Jam - Town Called Malice (Topplagið í Bretlandi 1982)
Billy Joel - Turn The Lights Back On
Flott - Með þér líður mér vel
Thompson Twins - Doctor! Doctor!
Teddy Swims - Lose Control
TLC - Creep
Wham - Freedom (Long mix) (Eitís 12 tomman)
U2 - Atomic City
Bryan Ferry - Dont stop the dance
15:00
Friðrik Dór Jónsson - Aftur ung (Dansaðu við mig)
James Brown - Living in America
Johnny Hates Jazz - Shattered Dreams (Eitís plata vikunnar)
Johnny Hates Jazz - Turn Back The Clock (Eitís plata vikunnar)
Sóldögg - Leysist Upp
Foreigner - Waiting for a girl like you
A-ha - Sun Always Shines On TV
Freddie Mercury - Living On My Own (Minning úr tónlistarsögunni frá 1990)
Júlí Heiðar - Farfuglar
Roachford - All The Love We Need
The Police - Every breath you take
The Blow Monkeys - It doesn't have to be this way
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Við förum í tónlistarferðalag til Bandaríkjanna í þættinum í dag og sögumaður er Gunnlaugur Sigfússon sem sá um þáttinn Plötuskápinn hérna á Rás 2 ásamt Halldóri Inga Andréssyni og Sigurði Sverrissyni fyrir nokkrum árum.
Gulli og vinur hans Finnbogi Marinósson fóru saman í músík-bíltúr um Bandaríkin í fyrra og heimsóttu staði semþeir höfðu lesið um í músíkblöðum og bókum síðan þeir voru unglingar. Þeir óku 8.000 kílómetra, fóru til Memphis, Clarksdale, Nashville, Chicago og Muscle Shoals til dæmis.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 11. - 18. febrúar 2024.
Fréttastofa RÚV.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Sylvía Nótt hneykslar Evrópubúa, íslenskt lag í fyrstu iPhone auglýsingunni, Brain Police ræður sænskan upptökustjóra og Nylon fer í útrás. Sigur Rós túrar um landið, Rás 2 rokkar hringinn, Ampop siglir til tunglsins, Dikta vekur athygli í útlöndum og Hermigervill kemur fólki í stuð. Baggalútur og Bo rugla saman reytum sínum, Lay Low kemur fram á sjónarsviðið, Mammút gefur út sína fyrstu plötu og Bubbi heldur uppá fimmtugsafmælið. Svala Björgvins snýr aftur inn í heim danstónlistarinnar, Nilfisk lendir í hagsmunaárekstri, Toggi slær í gegn og Fræ hittir í mark með freðnum fávita.
Meðal viðmælenda í 31. þættinum, í fyrri hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2006, eru Bragi Valdimar Skúlason, Birgir Hilmarsson, Haukur Heiðar Hauksson, Jón Bjarni Pétursson, Birgir Örn Steinarsson, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Gaukur Úlfarsson, Jónatan Garðarsson, Sölvi Blöndal, Einar Örn Jónsson, Þorgrímur Haraldsson, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Einar Tönsberg, Kári Sturluson, Einar Bárðarson, Svala Björgvinsdóttir, Víðir Björnsson, Katrína Mogensen, Arnar Pétursson, Jón Björn Ríkharðsson og Pétur Þór Benediktsson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Baggalútur - Ballantines
Baggalútur & Bo Hall - Allt fyrir mig
Þorvaldur Bjarni - Til hamingju Ísland (Demó - Walk on the wild side)
Silvía Nótt - Til hamingju Ísland
Regína Ósk - Þér við hlið
Silvía Nótt - Congratulations
Blindfold - Sleepless Nights
Ampop - Sail to the Moon
Ampop - Get’s me down
Ampop - Two Directions
Ampop - Carry On
Dikta - Breaking the waves (kassagítar)
Dikta - Chloe (Live á Nasa)
Hermigervill - Sleepwork
Hermigervill - Houselagið (Live á Nasa)
Vax - Your Hair Is Stupid
Vax - Like You
Fræ - Freðinn fáviti
Fræ - Dramatísk Rómantík
Biggi (Maus) - The Hardway
Biggi (Maus) - Perfect Sunday
Telepathetics - Last Song
Bubbi Morthens - Grafir og bein
Bubbi - Landið var aldrei það sama
Lay Low - Please Don’t Hate Me
Lay Low - Boy Oh Boy
Lay Low - Mojo Love
Lay Low - I’ll Try
Elísabet Eyþórs - Páskaliljan mín
Eberg - I’m moving to Wales
Eberg - Inside Your Head
Eberg - Love Your Bum
Sigur Rós – Hljómalind
Sigur Rós - Heysátan (Live)
Hildur Vala - Lalala
Hildur Vala - Gömul taska
Stuðmenn og Birgitta Haukdal - Á röltinu í Reykjavík
Nylon - Losing a friend
Nylon - Closer
Dr. Mister & Mr. Handsome - Is it love
Dr. Mister & Mr. Handsome & Svala - Was that all it was
Steed Lord - Dirty mutha
Nilfisk - It’s Fine
Ultra Mega Technobandið Stefán - Lift Your Hands In The Air Like You Just Don’t Care
Mammút - Flottræfill
Mammút - Þeir reyna
Mammút - Þorkell
Brain Police - Black Tulip
Brain Police - Rooster Booster
Ókind - Illar dylgjur
Ókind - Ó ég
Mugison - Sveitin milli sanda
Pétur Ben - Ding Dong
Magga Stína - Fílahirðirinn frá Súrín