16:05
Síðdegisútvarpið
30.maí
Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið að kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess að kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur að akstur vegna farsímanotkunar sé einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess að fólk sem notar síma við akstur sé fjórum sinnum líklegra til að lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra að fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. Nú hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið að hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt að tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru að fara að kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig að mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið að boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Alþingi getur orðið fyrst þjóðþinga í heiminum til þess að fordæma umfangsmikil barnarán Rússa á hernámssvæðum í Úkraínu, verði þingsályktunartillaga utanríkismálanefndar samþykkt, en hún verður tekin fyrir á dagskrá þingsins á morgun. Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar, átti frumkvæði að tillögunni og hann kemur til okkar í Síðdegisútvarpið á eftir.

Með hækkandi aldri á fólk það til að venja sig af því að leika sér. Oft vantar stað eða vettvang til þess en Thelma Björk Jónsdóttir jóga - og textílkennari hefur lausn við því Hún ætlar að skapa vetttvang með leikskóla þar sem fullorðið fólk fær rými til að leika sér. Thelma hefur gengið með þennan draum í maganum lengi og nú hefur hún skrifað lokaverkefni í háskóla um það og kemur til okkar í síðdegisútvarpið og segir frá.

Í dag er alþjóðlegi MS dagurinn. Tilgangur dagsins er að vekja fólk til meðvitundar um tilvist MS sjúkdómsins og fræða í leiðinni hvaða þýðingu það hefur að greinast með MS og hvaða áhirf það hefur á líf fólks. Hingað til okkar á eftir koma þær Lára Björk Bender formaður Skells félags ungs fólks með MS og Hjördís Ýrr Skúladóttir formaður MS félagsins og segja okkur frá sinni reynslu af sjúkdómnum.

Gígja Hólmgeirsdóttir verður hjá okkur. Hún skrapp á flugvöllinn á Akureyri og spjallaði þar við Baldvin Sigurðsson í Flugkaffi sem hefur boðið flugvallargestum upp á veitingar í heil tuttugu ár. En nú er komið að tímamótum. Nánar um það síðar í þættinum.

Gönguhátíðin er haldin Reykjavík þriðja árið í röð og hefst í dag. Boðið verður upp á nokkrar fjölbreyttar göngur í Reykjavík og nágrenni og kostar ekkert að taka þátt Það er göngufélagsskapurinn Vesen og Vergangur sem stendur fyrir hátíðinni við heyrum í forsprakkanum Einari Skúlasyni.

En það lítur út fyrir að sumarið sé komið á austurlandi, á línunni hjá okkur er Halldór Warén en hann er staddur í Tehúsinu á Egilsstöðum.

Er aðgengilegt til 29. maí 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,