18:30
Saga hlutanna
Skip
Saga hlutanna

Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.

Í Sögu hlutanna í vetur erum við búin að fara yfir sögu bílsins og flugvélarinnar og nú ætlum við að fræðast um skip. Við förum hratt yfir sögu, allt frá skinnbátum til tæknilegra skipa eins og við þekkjum í dag. Hvernig haldast skip á floti? Við heyrum einnig hvernig menn rötuðu áður en áttavitinn kom til sögunnar, við fáum að heyra hvað er landhelgi og hvort við höfum einhverntímann lent í veseni út af henni og heyrum af Þorskastríðunum. Sérfræðingur þáttarins er: Hilmar Snorrason

Var aðgengilegt til 28. ágúst 2023.
Lengd: 20 mín.
e
Endurflutt.
,