16:05
Síðdegisútvarpið
21.mars

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Eitt barn af hverjum sjö hundruð sem fæðast í heiminum er með Downs-heilkenni. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að 21.mars ár hvert skuli vera Alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis. Tilgangurinn er að vekja almenning til vitundar um fólk sem fæðist með þetta heilkenni, þarfir þeirra, óskir, drauma og vanda sem það þarf að glíma við. Guðmundur Ármann formaður félags áhugafólks um Downs heilkennið kemur til okkar á eftir.

Næstkomandi fimmtudag verður haldin stór ráðstefna um geðheilbrigðismál í Hörpu, það er heilbrigðisráðuneytið sem stendur fyrir ráðstefnunni í tilefni af formennskuári Íslands í norrænu ráðherranefndinni. Á ráðstefnunni er fjallað um þau geðheilbrigðismál sem helst brenna á norrænu þjóðunum hverju sinni. Til að fræðast frekar um hvað verður sett á oddinn í Hörpu á fimmtudaginn koma til okkar þau Helga Sif Friðjónsdóttir geðhjúkrunarfræðingur en hún er ein þeirra sem unnið hefur að skipulagngu ráðstefnunnar og Ágúst Kristján Steinarsson sem þekkir geðheilbrigðis mál af eigin reynslu sem sjúklingur en einnig í gegnum störf sín sem ráðgjafi.

Eins og alla þriðjudaga þá komum við okkur í samband við RÚV á Akureyri þar sem að Gígja Hólmgeirsdóttir mun færa okkur fréttir að norðan, meðal annars fréttir af Hríseyjarferjunni en hún ræðir við Ásrúnu Ýr Gestsdóttur, verkefnastjóra yfir verkefninu Áfram Hrísey.

Björn Emilsson pródúsent maðurinn á bakvið Spaugstofuna og Á tali hjá Hemma Gunn lætur af störfum hjá Ríkisútvarpinu í dag og við ætlum að fá hann til okkar í spjall um það helsta sem stendur upp úr á ferlinum.

Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days verður haldin í níunda sinn dagana 23. mars til 2. apríl 2023. Hátíðin er kvikmynda- og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvikmyndabransanum og er haldin í Bíó Paradís í samvinnu við öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi þar sem allt kapp er lagt á að starfrækja Stockfish á faglegan, gagnsæjan og lýðræðislegan hátt með stjórn skipaðri fulltrúum frá fagfélögum kvikmyndaiðnaðarins. Hrönn Kristinsdóttir framleiðandi og kvikmyndagerðarkona er listrænn stjórnandi hátíðarinnar hún kemur til okkar á eftir.

Þingfesting hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í dag vegna líkamsárásar á bankastræti club. Valur Grettisson fréttamaður kemur til okkar og fer yfir það sem fram fór í Hérðasdómi í dag auk þess sem hann segir okkur forsögu málsins.

Var aðgengilegt til 20. mars 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,