06:50
Morgunútvarpið
21. mars - Grímsey, vínyll, ökklabönd, loftslagsmál, vísindi o.fl.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Við ræddum samgöngumál í Grímsey, en Grímseyjarferjan Sæfari, sem siglir milli Dalvíkur og eyjarinnar, er farinn í slipp og verður þar næstu 6-8 vikurnar. Á meðan leikur Þorleifur EA lykilhlutverk hvað varðar vöruflutninga og flugferðum fjölgar. Svafar Gylfason, sjómaður í Grímsey, var á línunni.

Þau sögulegu tímamót urðu í tónlistarheiminum í fyrra að fleiri vínylplötutur en geisladiskar seldust í Bandaríkjunum, í fyrsta skipti síðan 1987. Við ræddum við Harald Leví Gunnarsson, eigandi Plötubúðarinnar í Hafnarfirði, um auknar vinsældir vínylplötunnar undanfarin ár.

Meirihluti er fyrir því á danska þinginu að prófa lausn sem Norðmönnum hefur reynst vel í nálgunarbannsmálum og felur í sér ökklaband með GPS-staðsetningarbúnaði sem hinn nálgunarbannaði ber öllum stundum. Við ræddum hvernig þessum málum er háttað á Íslandi, og hvort æskilegt sé að nota slík ökklabönd hér, við Maríu Rún Bjarnadóttur, lögfræðing hjá Ríkislögreglustjóra.

Við horfðum til framtíðar þegar Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs kom til okkar og horfði til ársins 2040. Við ræddum markmið um kolefnishlutlaust Ísland, hvaða áhrif það mun hafa á samfélag, umhverfi og atvinnulíf og hvernig slíkum markmiðum verður náð.

Sævar Helgi Bragason, vísindasérfræðingur Morgunútvarpsins, kom til okkar í dag og ræddi eldvirkni á Venus, jafndægur og lyktarskyn.

Svo ræddum við fund Vladimír Pútin Rússlandsforseta og Xi Jinping, forseta Kína, í gær en kínversk stjórnvöld hafa gagnrýnt Alþjóðasakamáladómstóllinn í Haag, fyrir að gefa út handtökuskipun gegn Pútín í síðustu viku. Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands, var gestur okkar.

Tónlist:

Moses Hightower - Stutt skref.

Hannes ft. Waterbaby - Stockholmsvy.

Jake Bugg - All I need.

Taylor Swift - Anti-Hero.

Una Torfa - Það sýnir sig.

Retro Stefson - Velvakandasveinn.

The Cardigans - Fr what it's worth.

Vök - Stadium.

The Cranberries - Dreams.

Var aðgengilegt til 20. mars 2024.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,