06:50
Morgunvaktin
Íslenskur efnahagur og þýsk og frönsk málefni

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, yfir stöðu efnahagsmála á Íslandi. Hann ræddi um verðbólgu og vaxtahækkanir, hátt fasteignaverð og minnkandi kaupmátt. Þá fjallaði hann um þrot og vandræði banka í útlöndum.

Arthúr Björgvin Bollason sagði frá óeiningu um hvert bera að stefna í samgöngumálum í Þýskalandi. Samgönguráðherrann er sagður hallur undir stóru bílaverksmjurnar og vill ekki setja hraðahámark á hraðbrautir né efla lestarsamgöngur. Hann talaði líka um skemmdarverkin sem unnin voru á Nordstream-gasleiðslunum á síðsta ári en sökudólgar hafa enn ekki fundist og nýja kenningu þekkts þýsks heimspekings sem vill meina að það geri fólki gott að róla.

Snúin staða er í frönskum stjórnmálum. Staða Macrons forseta er veik en stjórn hans stóð með naumindum af sér vantrauststillögu í franska þinginu í gær. Torfi Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, varpaði ljósi á gang mála.

Tónlist:

I don?t know why - Norah Jones,

Daydreame believer - The Monkees.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,