
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Helga Bragadóttir flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, yfir stöðu efnahagsmála á Íslandi. Hann ræddi um verðbólgu og vaxtahækkanir, hátt fasteignaverð og minnkandi kaupmátt. Þá fjallaði hann um þrot og vandræði banka í útlöndum.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá óeiningu um hvert bera að stefna í samgöngumálum í Þýskalandi. Samgönguráðherrann er sagður hallur undir stóru bílaverksmjurnar og vill ekki setja hraðahámark á hraðbrautir né efla lestarsamgöngur. Hann talaði líka um skemmdarverkin sem unnin voru á Nordstream-gasleiðslunum á síðsta ári en sökudólgar hafa enn ekki fundist og nýja kenningu þekkts þýsks heimspekings sem vill meina að það geri fólki gott að róla.
Snúin staða er í frönskum stjórnmálum. Staða Macrons forseta er veik en stjórn hans stóð með naumindum af sér vantrauststillögu í franska þinginu í gær. Torfi Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, varpaði ljósi á gang mála.
Tónlist:
I don?t know why - Norah Jones,
Daydreame believer - The Monkees.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við höfum fjallað talsvert undanfarið í þættinum um áföll og afleiðingar áfalla og áfallastreitu og meðferðarúrræði. Í þeim umræðum, við sálfræðinga og sérfræðinga í úrvinnslu og greiningu áfalla hefur EMDR meðferð oft verið nefnd. En hvað er EMDR meðferð? Dr. Gyða Eyjólfsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um EMDR meðferðir.
Helena Jónsdóttir leikstjóri, dansari og listakona kom svo í þáttinn, en hún hefur sett saman dagskrá alþjóðlegra stuttmynda fyrir Stockfish kvikmyndahátíðina sem verða sýndar 23. mars til 2. apríl víðs vegar um borgina. Helena hefur nýverið gengið í gegnum missi á eiginmanni, móður, systur og bestu vinkonu á tiltölulega stuttum tíma, en listin hefur sannarlega verið henni stuðningur í þessu ferli. Stuttmyndirnar sem hún valdi á hátíðina hafa til dæmis haft sömu áhrif á hana eins og hughreystandi ljóð eða bók.
Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í sitt vikulega veðurspjall. Hún sagði okkur frá alþjóðlega veðurfræðideginum sem er á fimmtudaginn og svo sagði hún einnig frá nýrri skýrslu í loftslagsmálum frá Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.
Tónlist í þættinum í dag
Hvítu mávar / Helena Eyjólfsdóttir (Walter Lange, texti Björn Bragi Magnússon)
Ástarsæla / Júníus Meyvant (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson)
Jón á Gili / J.M. kvartettinn og Steinunn Bjarnadóttir (Reg Connelly, Frederick Hollander, Böðvar Guðmundsson)
Söngur fjallkonunnar / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Anna Lísa Rúnarsdóttir doktor í mannfræði.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.
Fjölmennasta þingfesting sögunnar er í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tuttugu og fimm sakborningar verða leiddir fyrir dómara vegna hnífstunguárásar í Bankastræti í nóvember.
Stjórnvöldum í Kína er mikið í mun að koma á friði í Úkraínu enda hefur stríðið sett Kínverja í óþægilega stöðu, segir prófessor í kínverskum fræðum. Á meðan forsetar Kína og Rússlands ræða málin í Moskvu er forsætisráðherra Japans kominn til Kyiv.
Þjóðaröryggisráð fundar þessa stundina vegna framtíðarskipulags þjóðaröryggismála. Ríkislögreglustjóri segir mikilvægt að vera vel undirbúin í ljósi stöðu heimsmála.
Þrjátíu hjúkrunarrými á Hlíð á Akureyri eru óíbúðarhæf vegna myglu. Stjórnendur kalla eftir tafarlausum úrbótum og segja ríki og bæ varpa ábyrgð hvort á annað.
Ekkert barn hefur fæðst með Downs-heilkennið hér á landi í hátt í þrjú ár. Faðir barns með heilkennið segir þetta hræðilega staðreynd, barnið sé hans lífsins gæfa. Alþjóðadagur Downs-heilkennisins er í dag.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, leggur til að núverandi skattlagning á eldsneyti og bifreiðagjald falli niður og í staðinn komi gjald fyrir hvern ekinn kílómetra. Gjaldið á að endurspegla áhrif bíls á umhverfið.
Kynþáttafordómar, kvenfyrirlitning og fordómar gegn hinsegin fólki eru landlægir í lögreglunni í Lundúnum samkvæmt nýrri skýrslu. Lögreglustjórinn tekur undir efni skýrslunnar að mestu leyti og lofar úrbótum.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Stórleikarinn Alec Baldwin sætir ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir að skot hljóp úr skammbyssu sem Baldwin mundaði á tökustað kvikmyndarinnar Rust haustið 2021. Skotið hæfði hina 42 ára kvikmyndatökukonu Halynu Hutchins í bringuna áður en það endaði í öxl leikstjórans Joel Souza. Hann særðist lítillega og náði sér fljótt en Halyna lést af sárum sínum. Þetta var ekki viljaverk. Byssan var leikmunur í kvikmyndinni, períóduvestra sem gerist undir lok 19. aldar. Þar sem að um slys var að ræða kom nokkuð á óvart að Baldwin skyldi vera ákærður en rannsóknin hefur einnig beinst að vopnaverði myndarinnar, sem hefur einnig verið ákærð, auk aðstoðarleikstjórans. Í ljós hefur komið að ýmsu var ábótavant varðandi starfsaðstæður og öryggismál á tökustað, tími og peningar hafi ráðið för við framleiðslu myndarinnar. Nú í vor, einu og hálfu ári eftir atvikið, er stefnt á að ljúka tökum en enginn útgáfudagur hefur verið settur. Snorri Rafn Hallsson fer yfir málið í þætti dagsins.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Það er litið sífellt meira til vindorkuvera, vindmyllugarða, þegar kemur að rafmagnsframsleiðslu á Íslandi og mikið rætt um að þarna sé á ferðinni umhverfisvænni raforkukostur. Í dag verður haldið málþing á vegum Fuglaverndar þar sem þetta er skoðað, hvaða áhrif hafa vindorkuver á fuglalíf á Íslandi? Eru vindorkuver áhættunar virði? Við ræðum við Aðalstein Örn Snæþórsson og Kristinn Hauk Skarphéðinsson fuglafræðinga um rannsóknir á þessum málum.
Við klæðum okkur í sýnileikavesti og setjum á okkur hjálm í Samfélaginu því við ætlum að heimsækja nýtt skrifstofuhús Alþingis í þættinum. Þar er verið að slípa gólf og reisa milliveggi - og auðvitað allt þar á millli. Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis ætlar að leiða okkur um húsið.
Ruslarabb um gluggaumslög
Neytendaspjall við Brynhildi Pétursdóttur ritstjóra Neytendablaðsins um 70 ára afmæli samtakanna. Þau hafa mæðst í mörgu í gegnum tíðina og unnið mál sem hafa verið til mikilla bóta fyrir neytendur á Íslandi. Brynhildur rifjar nokkur upp.

Útvarpsfréttir.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Ægir Sindri Bjarnason rekur tónlistarsögu sína og leiðina úr trommunum inn í tilraunakenndan tölvuspuna. Umsjón: Árni Matthíasson.
Lagalisti:
Crooked Bangs - maybe a bit insecure
The Earth Grew Uncertain - forgetting that it could kill me (æ4.1.1)
Af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur? - Blind bisexual goose named thomas who spent six years in a love triangle with two swans and helped raise 68 babies dies at the ripe old age of 40
tem end lopo - mual erc
the portal rose - the dreams is talk to you
accepting uncertainty - submit to the rhythms of your speech
accepting uncertainty - devastating insomnia (feat. MSEA)

Útvarpsfréttir.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hornhöfði, syðsti oddi Suður-Ameríku, er sakleysislegur í góðu veðri en sumarið (veturinn!) 1838 var bandaríska skipið Alert vikum saman að reyna að brjótast fyrir hann gegnum hafísbreiður, jakaborgir og illviðri sem stóðu vikum saman. Fyrir viku las Illugi Jökulsson úr frásögnum Richard Henry Dana, háseta á Alert, en þá voru aðstæður um borð orðnar svo skelfilegar að skipverjar voru farnir að undirbúa uppreisn gegn skipstjóra sínum. Löðrið gengur yfir skipverjana þar sem þeir hírast uppí rá og reiða í stormum og frosti.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Í Gerðarsafni stendur nú yfir sýningin Að rekja brot, þar sem sex erlendir listamenn rannsaka nýlenduhyggju, rasisma og kúgun. Með því að rekja brot sinnar eigin sögu og sjálfsmyndar rannsaka listamennirnir um leið stöðu sína í samfélaginu og setja fram á fjölbreyttan hátt. Daría Sól Andrews er hugmyndasmiður og sýningarstjóri sýningarinnar en hún segir viðfangsefnið hafa verið sér hugleikið til fjölda ára. Henni finnist vanta fjölbreytileika og sýnileika hér á landi, ekki bara í formi sagna og listaverka, heldur einnig í sýningahaldi, og þar að auki tengi hún sterkt við efnið persónulega. Við ræðum við Daríu Sól í þætti dagsins.
Við ræðum einnig við Bergsvein Þórsson, safnafræðing og dósent við Háskólann á Bifröst um safnastarf á tímum mannaldar. Er umhverfisvitund fyrst og fremst gluggaskraut til þess létta á mannaldarmóralnum? Getur menningarstarfsemi lagt eitthvað til í umhverfis- og loftslagsmálum?
Einnig heyrum við pistil frá Freyju Þórsdóttur sem í dag fjallar um fegurðina í hversdagsleikanum. Það gerir hún meðal annars með hliðsjón af ólíkum hugmyndum um guðleikann og skoðar í því samhengi muninn á transhúmanískri hugsun og heimspeki Simone Weil.
Og svo hugum við að ljóðum en í dag er alþjóðlegur dagur ljóðsins.

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Lestarþáttur dagsins í dag verður helgaður kvikmyndinni Volaða land. Við ræðum við leikstjóra og handritshöfund myndarinnar, Hlyn Pálmason.
Myndin er nú í kvikmyndahúsum hér landi næstum ári eftir að hún var frumsýnd á Cannes í maí í fyrra. Myndin sem öll er tekin upp á filmu segir sögu danska prestsins Lúkasar, sem fer í háskaför um hálendið undir lok 19. aldar. Ætlun hans er að reisa kirkju og mynda íbúa og náttúru Íslands. Það er hægt að lesa ýmislegt í myndina um samband nýlenduherra og hjálendu, manns og náttúru, um valdið sem felst í ljósmyndatækninni, því hvernig við horfum og skrásetjum. Við ræðum við Hlyn um allt þetta og meira í þætti dagsins.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
21 sakborningur í Bankastrætismálinu mætti fyrir dómara í dag í umfangsmestu þingfestingu sem sést hefur í héraðsdómi. Allir neituðu sök.
Forsætisráðherra segir að stjórnvöld hafi ekki brugðist við af nægilegri festu í loftslagsmálum. Yfirmaður skrifstofu loftlagsþjónustu og aðlögunar segir nauðsynlegar mótvægisaðgerðir við loftslagsbreytingum ekki á færi einstaklinga, þær séu undir stjórnvöldum komnar.
Menn verða að flýta sér hægt í orkuskiptum og taka tillit til fuglalífs þegar staðsetning vindorkugarða er ákveðin. Þetta segir fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.
Karlar voru í miklum meirihluta í valnefndum Eddunnar. Konur í kvikmyndum gagnrýna þetta harðlega og segja það ótrúlegt eftir allt sem á undan sé gengið.
-----
Börnin okkar munu lifa í breyttum og heitari heimi en ákvarðanir okkar skipta sköpum um hve gjörbreyttur hann verður frá því sem við þekkjum. Heimsbyggðin hefur tvö ár til snúa hlýnun jarðar við áður en hún verður óstöðvandi og stjórnlaus. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna birtir nákvæmar leiðbeiningar um hvernig hægt er að gera það í nýjustu skýrslu sinni sem kom út í gær. Gríðarmiklar kerfisbreytingar þarf til og þær eru ekki á færi einstaklinga. Hafdís Helga Helgadóttir ræðir við Önnu Huldu Ólafsdóttur,yfirmann skrifstofu loftlagsþjónustu og aðlögunar.
Lögreglunni í Lundúnum eru ekki vandaðar kveðjurnar í nýrri skýrslu sem gefin var út í dag. Kynþáttafordómar eru alls ráðandi innan lögreglunnar og nauðgunarmál hafa fallið niður vegna innanhússklúðurs.
Meðal annars var sett beikon í skó íslamsks lögreglumanns og kynlífstæki í kaffibolla kvenlögreglumanna. Lögreglustjórinn og stjórnvöld lofa umbótum. Bjarni Rúnarsson fjallar um málið
Það er góðæri til sjávarins og fiskverð hátt á Íslandi sem i Noregi. En norskir útvegsmenn eru venjufremur svartsýnir á framtíðina. Með norska kvótakerfinu átti að sníða af gallana sem fylgja því íslenska. En núna sjá norskir útvegsmenn fram á að missa stóran hluta af kvótum sínum og fá þá í hendur stjórnmálamanna. Gísli Kristjánsson segir frá.
Spegillinn 21. mars 2023.
Umsjón:Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.
Í þætti dagsins ætlum við að fræðast um útvarp. Útvarpstækið breytti gríðarlega miklu í samfélagi okkar og ætlum við að heyra um upphafið og þær merku uppfinningar sem þurftu að smella saman svo útvarpið yrði að veruleika. Við heyrum svo um hvernig og hvenær útvarpið kom til Íslands, hvað var hægt að gera með útvarpstækjunum annað en að hlusta á útsendinguna og hrekki sem voru gerðir í útvarpi hér á árum áður.
Sérfræðingur þáttarins er: Hreinn Valdimarsson

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum Collegium Marianum kammersveitarinnar á Snemmtónlistarhátíðinni í Herne í Þýskalandi í fyrra.
Á efnisskrá eru verk eftir Antonio Vivaldi, Georg Philipp Telemann, Michel-Richard de Lalande, Marin Marais og Georg Friedrich Händel.
Stjórnandi: Jana Semerádová flautuleikari.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Það er litið sífellt meira til vindorkuvera, vindmyllugarða, þegar kemur að rafmagnsframsleiðslu á Íslandi og mikið rætt um að þarna sé á ferðinni umhverfisvænni raforkukostur. Í dag verður haldið málþing á vegum Fuglaverndar þar sem þetta er skoðað, hvaða áhrif hafa vindorkuver á fuglalíf á Íslandi? Eru vindorkuver áhættunar virði? Við ræðum við Aðalstein Örn Snæþórsson og Kristinn Hauk Skarphéðinsson fuglafræðinga um rannsóknir á þessum málum.
Við klæðum okkur í sýnileikavesti og setjum á okkur hjálm í Samfélaginu því við ætlum að heimsækja nýtt skrifstofuhús Alþingis í þættinum. Þar er verið að slípa gólf og reisa milliveggi - og auðvitað allt þar á millli. Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis ætlar að leiða okkur um húsið.
Ruslarabb um gluggaumslög
Neytendaspjall við Brynhildi Pétursdóttur ritstjóra Neytendablaðsins um 70 ára afmæli samtakanna. Þau hafa mæðst í mörgu í gegnum tíðina og unnið mál sem hafa verið til mikilla bóta fyrir neytendur á Íslandi. Brynhildur rifjar nokkur upp.
Guðsgjafaþula kom út árið 1972. Þar segir af hinum ótrúlega síldarspekúlant Íslandsbersa og fjölskyldu hans og samskiptum kornungs rithöfundar við Bersa sem hefjast einn vordag í Kaupmannahöfn árið 1920.
Höfundur les. Hljóðritað árið 1979.
Lestrar Halldórs Laxness úr safni RÚV eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur skáldsins.
eftir Halldór Laxness.
Höfundur les.
(Hljóðritað 1979)

Veðurstofa Íslands.

Sverrir Kristjánsson, sagnfræðingur, les. Á undan lestrinum hljómar upphaf tilheyrandi sálmalags sem Páll Ísólfsson leikur á orgel Dómkirkjunnar.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Lestarþáttur dagsins í dag verður helgaður kvikmyndinni Volaða land. Við ræðum við leikstjóra og handritshöfund myndarinnar, Hlyn Pálmason.
Myndin er nú í kvikmyndahúsum hér landi næstum ári eftir að hún var frumsýnd á Cannes í maí í fyrra. Myndin sem öll er tekin upp á filmu segir sögu danska prestsins Lúkasar, sem fer í háskaför um hálendið undir lok 19. aldar. Ætlun hans er að reisa kirkju og mynda íbúa og náttúru Íslands. Það er hægt að lesa ýmislegt í myndina um samband nýlenduherra og hjálendu, manns og náttúru, um valdið sem felst í ljósmyndatækninni, því hvernig við horfum og skrásetjum. Við ræðum við Hlyn um allt þetta og meira í þætti dagsins.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Við ræddum samgöngumál í Grímsey, en Grímseyjarferjan Sæfari, sem siglir milli Dalvíkur og eyjarinnar, er farinn í slipp og verður þar næstu 6-8 vikurnar. Á meðan leikur Þorleifur EA lykilhlutverk hvað varðar vöruflutninga og flugferðum fjölgar. Svafar Gylfason, sjómaður í Grímsey, var á línunni.
Þau sögulegu tímamót urðu í tónlistarheiminum í fyrra að fleiri vínylplötutur en geisladiskar seldust í Bandaríkjunum, í fyrsta skipti síðan 1987. Við ræddum við Harald Leví Gunnarsson, eigandi Plötubúðarinnar í Hafnarfirði, um auknar vinsældir vínylplötunnar undanfarin ár.
Meirihluti er fyrir því á danska þinginu að prófa lausn sem Norðmönnum hefur reynst vel í nálgunarbannsmálum og felur í sér ökklaband með GPS-staðsetningarbúnaði sem hinn nálgunarbannaði ber öllum stundum. Við ræddum hvernig þessum málum er háttað á Íslandi, og hvort æskilegt sé að nota slík ökklabönd hér, við Maríu Rún Bjarnadóttur, lögfræðing hjá Ríkislögreglustjóra.
Við horfðum til framtíðar þegar Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs kom til okkar og horfði til ársins 2040. Við ræddum markmið um kolefnishlutlaust Ísland, hvaða áhrif það mun hafa á samfélag, umhverfi og atvinnulíf og hvernig slíkum markmiðum verður náð.
Sævar Helgi Bragason, vísindasérfræðingur Morgunútvarpsins, kom til okkar í dag og ræddi eldvirkni á Venus, jafndægur og lyktarskyn.
Svo ræddum við fund Vladimír Pútin Rússlandsforseta og Xi Jinping, forseta Kína, í gær en kínversk stjórnvöld hafa gagnrýnt Alþjóðasakamáladómstóllinn í Haag, fyrir að gefa út handtökuskipun gegn Pútín í síðustu viku. Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands, var gestur okkar.
Tónlist:
Moses Hightower - Stutt skref.
Hannes ft. Waterbaby - Stockholmsvy.
Jake Bugg - All I need.
Taylor Swift - Anti-Hero.
Una Torfa - Það sýnir sig.
Retro Stefson - Velvakandasveinn.
The Cardigans - Fr what it's worth.
Vök - Stadium.
The Cranberries - Dreams.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 21. mars 2023
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Tónlist frá útsendingarlogg 2023-03-21
STUÐMENN - Mikki.
HELGI BJORNS - Besta útgáfan af mér.
ELÍN HALL - Vinir.
Loreen - Tattoo.
Laurence, Duncan - Skyboy (bonus track wav).
COI LERAY - Players.
PORTUGAL THE MAN - Dummy.
ÖNNU JÓNU SON - Almost over you.
GALA - Freed from desire (edit mix).
HALLDÓR ELDJÁRN & GDRN - Gleymmérei.
LAY LOW - Little By Little.
DEPECHE MODE - Ghosts Again.
ARLO PARKS - Softly.
DILJÁ - Power.
BERGSVEINN ARILÍUSSON - True Colors.
CORNELIA JAKOBS - Hold Me Closer (Svíþjóð).
Tame Impala - Wings Of Time.
eee gee - More than a Woman.
SHANNON - Let The Music Play (80).
Brunaliðið - Einskonar ást.
NANNA - Crybaby.
STEVIE WONDER - He's Misstra Know-It-All.
EDDA HEIÐRÚN BACHMANN - Önnur Sjónarmið.
PLACEBO - Beautiful James.
CHVRCHES - Over.
Run DMC - It's like that.
SAM SMITH - I'm Not Here To Make Friends.
PÁLL ÓSKAR - Betra Líf.
Deep Jimi and the Zep Creams - Haia Gurusah.
PREFAB SPROUT - Goodbye Lucille No.1 (Johnny Johnny) (80).
LANGI SELI OG SKUGGARNIR - OK.
Lizzo - Special (ft. SZA).
HARRY STYLES - Watermelon Sugar.
Mella Dee, Sumner, Bernard - Riptide (bonus track wav).
KARL ORGELTRIO & ELÍN HARPA - Svo skal högg á hendi detta.
THE TURTLES - Happy together.
Malen - All the time.
ZAK ABEL - What Love Is.
THE WEEKEND - Die For You (ft. Ariana Grande - Remix).
BJÖRK - Venus As A Boy.
FLOTT - Hún ógnar mér.
Gabriel, Peter - Playing For Time (Dark-Side Mix) (bonus track wav).
ÁRNÝ MARGRÉT - sniglar.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Fjölmennasta þingfesting sögunnar er í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tuttugu og fimm sakborningar verða leiddir fyrir dómara vegna hnífstunguárásar í Bankastræti í nóvember.
Stjórnvöldum í Kína er mikið í mun að koma á friði í Úkraínu enda hefur stríðið sett Kínverja í óþægilega stöðu, segir prófessor í kínverskum fræðum. Á meðan forsetar Kína og Rússlands ræða málin í Moskvu er forsætisráðherra Japans kominn til Kyiv.
Þjóðaröryggisráð fundar þessa stundina vegna framtíðarskipulags þjóðaröryggismála. Ríkislögreglustjóri segir mikilvægt að vera vel undirbúin í ljósi stöðu heimsmála.
Þrjátíu hjúkrunarrými á Hlíð á Akureyri eru óíbúðarhæf vegna myglu. Stjórnendur kalla eftir tafarlausum úrbótum og segja ríki og bæ varpa ábyrgð hvort á annað.
Ekkert barn hefur fæðst með Downs-heilkennið hér á landi í hátt í þrjú ár. Faðir barns með heilkennið segir þetta hræðilega staðreynd, barnið sé hans lífsins gæfa. Alþjóðadagur Downs-heilkennisins er í dag.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, leggur til að núverandi skattlagning á eldsneyti og bifreiðagjald falli niður og í staðinn komi gjald fyrir hvern ekinn kílómetra. Gjaldið á að endurspegla áhrif bíls á umhverfið.
Kynþáttafordómar, kvenfyrirlitning og fordómar gegn hinsegin fólki eru landlægir í lögreglunni í Lundúnum samkvæmt nýrri skýrslu. Lögreglustjórinn tekur undir efni skýrslunnar að mestu leyti og lofar úrbótum.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Óli Palli sá um Poppland dagsins.
Langi Seli og Skuggarnir - OK
Júpiters - Kóngasamba
Sigurður Guðmundsson - Havanalilja
Una Torfa - Það sýnir sig
Sam Ryder - Space man
Coldplay - Every teardrop is a waterfall
Gerry Rafferty - Right dow the line
U2 - Two hearts beat as one
Noel Gallagher?s High Flying birds - easy now
Kári - Sleepwalking
Damon Albarn & Malu music - Sunset coming on
Önnu Jónu Son - Almost over you
Kul - Operator
The Who - Behind blue eyes
The Byrds - Wild mountain thyme
The Beatles - Rain
Stefan Hilmarsson - Svimi svimi svitabað
Buene Vista Social Club - Chan chan
Bubbi - Borgarbarn
Demis Roussos - Forever and ever
Alex G - Running
Soul Asylum - Runaway train
Jet Black Joe - Running out of time
Paramore - Running out of time
Jessie Ware - Pearls
Suede - Trash
Beck - Tropicalia
Holy Hrafn - Bíddu bíddu
A+ - Enjoy yourself
Dr. Dre - Still D.R.E.
Eyjólfur Kristjánsson - Frá liðnu vori (Akureyri)
Rebekka Blöndal - Lítið ljóð
Egill Ólafsson - Við Mánagötu
Norah Jones - Sunrise
The Heavy heavy - Go down river
Gotye - Somebody that i used to know
Jethro Tull - Aqualung
Loreen - Tattoo
Malen -Paris
EMILINA TORRINI VIÐTALSBÚTUR
Emiliana Torrini - Racing the storm?
Frankie Goes to Hollywood - Born to run
Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Eitt barn af hverjum sjö hundruð sem fæðast í heiminum er með Downs-heilkenni. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að 21.mars ár hvert skuli vera Alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis. Tilgangurinn er að vekja almenning til vitundar um fólk sem fæðist með þetta heilkenni, þarfir þeirra, óskir, drauma og vanda sem það þarf að glíma við. Guðmundur Ármann formaður félags áhugafólks um Downs heilkennið kemur til okkar á eftir.
Næstkomandi fimmtudag verður haldin stór ráðstefna um geðheilbrigðismál í Hörpu, það er heilbrigðisráðuneytið sem stendur fyrir ráðstefnunni í tilefni af formennskuári Íslands í norrænu ráðherranefndinni. Á ráðstefnunni er fjallað um þau geðheilbrigðismál sem helst brenna á norrænu þjóðunum hverju sinni. Til að fræðast frekar um hvað verður sett á oddinn í Hörpu á fimmtudaginn koma til okkar þau Helga Sif Friðjónsdóttir geðhjúkrunarfræðingur en hún er ein þeirra sem unnið hefur að skipulagngu ráðstefnunnar og Ágúst Kristján Steinarsson sem þekkir geðheilbrigðis mál af eigin reynslu sem sjúklingur en einnig í gegnum störf sín sem ráðgjafi.
Eins og alla þriðjudaga þá komum við okkur í samband við RÚV á Akureyri þar sem að Gígja Hólmgeirsdóttir mun færa okkur fréttir að norðan, meðal annars fréttir af Hríseyjarferjunni en hún ræðir við Ásrúnu Ýr Gestsdóttur, verkefnastjóra yfir verkefninu Áfram Hrísey.
Björn Emilsson pródúsent maðurinn á bakvið Spaugstofuna og Á tali hjá Hemma Gunn lætur af störfum hjá Ríkisútvarpinu í dag og við ætlum að fá hann til okkar í spjall um það helsta sem stendur upp úr á ferlinum.
Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days verður haldin í níunda sinn dagana 23. mars til 2. apríl 2023. Hátíðin er kvikmynda- og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvikmyndabransanum og er haldin í Bíó Paradís í samvinnu við öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi þar sem allt kapp er lagt á að starfrækja Stockfish á faglegan, gagnsæjan og lýðræðislegan hátt með stjórn skipaðri fulltrúum frá fagfélögum kvikmyndaiðnaðarins. Hrönn Kristinsdóttir framleiðandi og kvikmyndagerðarkona er listrænn stjórnandi hátíðarinnar hún kemur til okkar á eftir.
Þingfesting hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í dag vegna líkamsárásar á bankastræti club. Valur Grettisson fréttamaður kemur til okkar og fer yfir það sem fram fór í Hérðasdómi í dag auk þess sem hann segir okkur forsögu málsins.

Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
21 sakborningur í Bankastrætismálinu mætti fyrir dómara í dag í umfangsmestu þingfestingu sem sést hefur í héraðsdómi. Allir neituðu sök.
Forsætisráðherra segir að stjórnvöld hafi ekki brugðist við af nægilegri festu í loftslagsmálum. Yfirmaður skrifstofu loftlagsþjónustu og aðlögunar segir nauðsynlegar mótvægisaðgerðir við loftslagsbreytingum ekki á færi einstaklinga, þær séu undir stjórnvöldum komnar.
Menn verða að flýta sér hægt í orkuskiptum og taka tillit til fuglalífs þegar staðsetning vindorkugarða er ákveðin. Þetta segir fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.
Karlar voru í miklum meirihluta í valnefndum Eddunnar. Konur í kvikmyndum gagnrýna þetta harðlega og segja það ótrúlegt eftir allt sem á undan sé gengið.
-----
Börnin okkar munu lifa í breyttum og heitari heimi en ákvarðanir okkar skipta sköpum um hve gjörbreyttur hann verður frá því sem við þekkjum. Heimsbyggðin hefur tvö ár til snúa hlýnun jarðar við áður en hún verður óstöðvandi og stjórnlaus. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna birtir nákvæmar leiðbeiningar um hvernig hægt er að gera það í nýjustu skýrslu sinni sem kom út í gær. Gríðarmiklar kerfisbreytingar þarf til og þær eru ekki á færi einstaklinga. Hafdís Helga Helgadóttir ræðir við Önnu Huldu Ólafsdóttur,yfirmann skrifstofu loftlagsþjónustu og aðlögunar.
Lögreglunni í Lundúnum eru ekki vandaðar kveðjurnar í nýrri skýrslu sem gefin var út í dag. Kynþáttafordómar eru alls ráðandi innan lögreglunnar og nauðgunarmál hafa fallið niður vegna innanhússklúðurs.
Meðal annars var sett beikon í skó íslamsks lögreglumanns og kynlífstæki í kaffibolla kvenlögreglumanna. Lögreglustjórinn og stjórnvöld lofa umbótum. Bjarni Rúnarsson fjallar um málið
Það er góðæri til sjávarins og fiskverð hátt á Íslandi sem i Noregi. En norskir útvegsmenn eru venjufremur svartsýnir á framtíðina. Með norska kvótakerfinu átti að sníða af gallana sem fylgja því íslenska. En núna sjá norskir útvegsmenn fram á að missa stóran hluta af kvótum sínum og fá þá í hendur stjórnmálamanna. Gísli Kristjánsson segir frá.
Spegillinn 21. mars 2023.
Umsjón:Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
GusGus - Into the strange.
Systur - Furðuverur.
Myrkvi - Self-Pity.
Fríða Hansen - Dönsum í hríðinni.
Júlí Heiðar - Ég er.
Svanur Kristjánsson - Room with a view in Guangzhou.
Kristmundur Axel - Ég er.
Hálfdán Árnason, Grétar Lárus Matthíasson, Ásmundur Jóhannsson - Unbreakable.
Jósep Gíslason - Room with a view in Guangzhou.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Þriðjudagskvöld á landinu kalda og Kvöldvaktinni bara eldhress í tilefni af því, ný lög í boði frá Langa Sela, Tame Impala, Mucky Muck, Manchester Orchestra, Alison Goldfrapp, Chemical Brothers, Fontaines D.C. og fleirum og fleirum.
Lagalistinn
LANGI SELI OG SKUGGARNIR - OK.
THE WHITE STRIPES - The Hardest Button To Button.
Tame Impala - Wings Of Time.
STONE TEMPLE PILOTS - Interstate Love Song.
Mucky Muck - Milk.
YEAH YEAH YEAHS - Maps.
Manchester Orchestra - The Way
CHRSTINE AND THE QUEENS - To Be Honest.
DEPECHE MODE - Ghosts Again.
EURYTHMICS - Love Is A Stranger.
hubbabubbaklubb - Mopedbart
Channel Tres - All My Friends
EVERYTHING BUT THE GIRL - Caution to the Wind.
RÓISÍN MURPHY - Coocool.
JESSIE WARE - Pearls.
LF SYSTEM - Afraid To Feel.
Alison Goldfrapp - So Hard So Hot
The Chemical Brothers - No Reason
NANNA - Crybaby.
THE THE & SINEAD O'CONNOR - Kingdom Of Rain.
National, The - New Order T-Shirt.
BC Camplight - The Last Rotation Of Earth.
Florence and the machine - Just A Girl.
KA-OSS - Edge of the world.
Green Day - Redundant.
Lottó - I'd die to be his wife.
Sparks - The Girl Is Crying In Her Latte
THE THE - $1 One Vote!.
CLASH - (White Man) In Hammersmith Palais.
PORTUGAL THE MAN - Dummy.
KUL - Operator.
Fontaines D.C. - Cello Song (Radio Edit).
YVES TUMOR - Echolalia.
Underworld - I Exhale
Slowthai - Sooner
Gabriels - Offering (A COLORS SHOW).
Vigdís Vala Valgeirsdóttir, Óli Hrafn Jónasson - Reyndi bara'ð ná mér
Chromeo - Words With You.
Olive - Your Not Alone
Django Django ft Self Esteem - Complete Me
Nia Archives - Baianá
Inspector Spacetime ft Unnsteinn - Kysstu mig

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Emiliana Torrini er gestur Rokklands í dag en hún var að senda frá sér plötu sem heitir Racing the storm með belgísku hljómsveitinni The Colorist Orchestra sem hún hefur unnið talsvert með undanfarin ár og spilað með á Íslandi t.d. Við spjöllum saman og kynnumst nýju plötunni auk þess sem við rifjum upp gamla viðtal sem Lísa Pálsdóttir tók við Emiliönu 1999.
Bubbi kemur aðeins við sögu og Rúni Júl, en nú er búið að sýna söngleikinn um Bubba - 9 líf í 3 ár. Við rifjum við uppviðtal við Bubba frá því fyrir daga Rásar 2 ? frá 1982 og líka heimsókn GCD í Std. 12 árið 1993 þegar Eva Ásrún Albertsdóttir tók á móti Bubba og Rúnari, Begga og Gulla Briem.
Og nýja U2 platan sem kom út á föstudaginn kemur aðeins við sögu, platan Songs of surrender sem hefur að geyma 40 áður útgefin U2 lög í nöktum kammerútsetningum c.a.