20:35
Samfélagið
Vindmyllur og fuglar, nýjar skrifstofur á Alþingi, rusl og afmæli

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: [email protected]

Það er litið sífellt meira til vindorkuvera, vindmyllugarða, þegar kemur að rafmagnsframsleiðslu á Íslandi og mikið rætt um að þarna sé á ferðinni umhverfisvænni raforkukostur. Í dag verður haldið málþing á vegum Fuglaverndar þar sem þetta er skoðað, hvaða áhrif hafa vindorkuver á fuglalíf á Íslandi? Eru vindorkuver áhættunar virði? Við ræðum við Aðalstein Örn Snæþórsson og Kristinn Hauk Skarphéðinsson fuglafræðinga um rannsóknir á þessum málum.

Við klæðum okkur í sýnileikavesti og setjum á okkur hjálm í Samfélaginu því við ætlum að heimsækja nýtt skrifstofuhús Alþingis í þættinum. Þar er verið að slípa gólf og reisa milliveggi - og auðvitað allt þar á millli. Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis ætlar að leiða okkur um húsið.

Ruslarabb um gluggaumslög

Neytendaspjall við Brynhildi Pétursdóttur ritstjóra Neytendablaðsins um 70 ára afmæli samtakanna. Þau hafa mæðst í mörgu í gegnum tíðina og unnið mál sem hafa verið til mikilla bóta fyrir neytendur á Íslandi. Brynhildur rifjar nokkur upp.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,