23:00
Ólátagarður
Karma Brigade í New York & deep.serene

Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.

Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.

Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.

Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson, Katrín Helga Ólafsdóttir og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.

Hljómsveitin Karma Brigade er um þessar mundir að ljúka stuttu en ævintýralegu tónleikaferðalagi í New York-borg. Bjarni Daníel sló á þráðinn til sveitarinnar og ræddi við þau um þessi ævintýri og væntanlegar útgáfur. Snæi heyrði hljóðið í tónlistarkonunni Halldóru Aguirre eða deep.serene en hún sendi nýverið frá sér sína fyrstu plötu, X.

Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson & Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack

Lagalisti:

Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður

Karma Brigade - Waiting Man

Karma Brigade - Waiting Man

Karma Brigade - Alive

Karma Brigade - Alive

Karma Brigade - Stasis

Karma Brigade - Look Up

deep.serene - LateNight

deep.serene - Shadow People

deep.serene - Wonderworld

deep.serene - Land of Confusion

Sniglarnir í töfraskógi - Grámann regnbogi

Var aðgengilegt til 05. mars 2024.
Lengd: 1 klst.
,