16:05
Síðdegisútvarpið
6.mars

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn- og leikskólum í Reykjavík. Melaskóli er einn þessara skóla og unnið er að leiðum til að bregðast við myglu í skólanum og framkvæmdir gætu hafist í vor. Líklegt er að framkvæmdir á húsnæði skólans muni taka einhver ár og ekki liggur fyrir hver eða hverjar af þeim tillögum um endurbætur sem lagðar hafa verið fram verði fyrir valinu. Bjarni Magnússon formaður Foreldrafélags Melaskóla segir stjórn félagsins hafa áhyggjur af stöðu mála en hann kemur til okkar á eftir en auk þess ætlum við að vera í sambandi við Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur sem búsett er á Spáni en hún er í stjórn SUM sem eru samtök um áhrif umhverfis á heilsu.

Við fengum ábendingu á dögunum varðandi gæludýr hvort staðan hafi breyst eftir covid - þ.e. að fleiri dýr þarfnist skjóls og heimilis en var áður. Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf. Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls 7,495 dýr í heimilisleit. Sonja Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjá Dýrahjálp Íslands og Valgerður Valgeirsdóttir formaður koma til okkar og segja frá,

Dreymir þig um að gera eldhúsið að þínu með einföldum breytingum? Aðstaða og vinnuskipulag skipta öllu máli þar sem við eyðum góðum hluta úr deginum í eldhúsinu. Svona hljóðar auglýsing frá Endurmenntun háskóla Íslands sem en þar verður boðið upp á kvöldnámskeið um hvernig við gerum eldhúsið okkar enn betra og þægilegra. Sú sem þar mun ausa úr sínum viskubrunni er Emelía Borgþórsdóttir hún kemur til okkar og segir okkur það helsta.

Dregið var úr um­sóknum um hrein­dýra­veiði­leyfi í beinu streymi á vef­síðu Um­hverfis­stofnunar sl. laugardag en áður hafði komið fram að færri hafi sótt um leyfi í ár en árin þar á undan. Jóhann G. Gunnarsson er umsjónarmaður hreindýraveiða hjá umhverfisstofnun við heyrum í honum og spyrjum hann út í framkvæmdina og hvers vegna hann telji að umsóknir um hreindýraleyfi hafi verið færri í ár.

Í Tjarnarbíó er þessa dagana boðið upp á sjónræna sýningu sem ber yfirskriftina ?Ég lifi enn - sönn saga? en sýningin fjallar um hið undarlega ferðalag sem lífið er og verkið er innblásið af persónulegri reynslu aðstandenda við að fylgja sínum nánustu inn í síðasta æviskeiðið og þeirra sem eru staddir í því sjálfir. Það er byggt á sögum, vinnusmiðjum og rannsóknarvinnu með eldri borgurum, með stuðningi Reykjavíkurborgar. Þórey Sigþórsdóttir einn höfunda verksins kemur til okkar ásamt Halldóru Rósu Björnsdóttur og segja okkur frá

Var aðgengilegt til 05. mars 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,