12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 06. mars 2023

Útvarpsfréttir.

Leiðtogi rússnesku Wagner-málaliðanna sakar stjórnvöld í Moskvu um svik vegna versnandi skotfæraskorts. Breska varnarmálaráðuneytið segir að rússneskir hermenn séu sendir til orrustu við Úkraínuher með aðeins byssur og skóflur að vopni

Boðað hefur verið til atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag um synjun forseta Alþingis á óskum þingmanna um að bera fram fyrirspurnir varðandi Lindarhvolsmálið og Ríkisendurskoðun. Álíka atkvæðagreiðsla fór síðast fram fyrir rúmum 30 árum.

Maður sem réðist með exi á barnsmóður sína hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi. Konunni tókst að flýja frá árásarmanninum og leita sér skjóls í grunnskóla.

Sveitarstjóri Húnabyggðar segir töluvert vanta upp á svo sveitarfélög á landsbyggðinni verði sjálfbær. Hann gagnrýnir hvernig viðskipti sveitarfélaga og ríkis fara fram.

Forsætisráðherra Eistlands útilokar samstarf við þjóðernisflokkinn EKRE, sem er næst stærsti flokkurinn á þingi eftir þingkosningarnar í gær. Flokkur forsætisráðherra - Umbótaflokkurinn - er sigurvegari kosninganna.

Húnvetningar vona að úttekt Háskólans á Akureyri á ástandi Vatnsnesvegar, flýti fyrirhuguðum vegaframkvæmdum. Sveitarstjórn Húnaþings vestra segir brýnt að koma illa förnum veginum í lag sem allra fyrst.

Lagið Power eftir Pálma Ragnar og Diljá Pétursdóttur hlaut flest heildaratkvæði á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar á laugardag. Lagið fékk samtals um 164 þúsund atkvæði á úrslitakvöldinu en OK með Langa Sela og Skuggunum var í öðru sæti með tæplega 96 þúsund atkvæði.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,