06:50
Morgunútvarpið
6. mars - Fæði barna, menningarmót, vextir, Öfgar, Endó, íþróttir

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Astma- og ofnæmisfélag Íslands stendur fyrir málþingi á morgun sem ber yfirskriftina: Hvað eru börnin okkar að borða þar sem markmiðið er að ræða samsetningu og næringargildi þess fæðis sem í boði er í skólum og leikskólum á Íslandi. Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands kom til okkar og sagði okkur nánar frá.

Um næstu helgi verður haldinn borgarfundur um áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun á Vesturlandi, en Vesturland er eitt af sex tilraunsvæðum Evrópurannsóknarinnar IN SITU sem hvetur til samtals um áskoranir og tækifæri í atvinnugreininni. IN SITU er nýtt alþjóðlegt rannsóknarverkefni sem Háskólinn á Bifröst er aðili að og tekur þátt í að vinna fram til ársins 2026 og við fengum að vita meira um málið þegar Erna Kaaber aðalrannsakandi verkefnisins á Bifröst kom til okkar.

Margt fólk stökk til og keypti sér húsnæði í Covid faraldrinum þegar vextir Seðlabankans voru með lægsta móti og markaðurinn var enn í þokkalegu jafnvægi. Nú er komið að því að fastir vextir mikils fjölda húsnæðislána losna á næstu vikum og mánuðum enda frestur þessara lána, sem er alla jafna ekki mikið lengri en 36 mánuðir, runninn upp. Við fengum til okkar Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna til að ræða þessa stöðu og hver réttur almennings er.

Vísir birti á dögunum hálfgert neyðarkall manns sem dæmdur var fyrir ítrekuð kynferðisbrot í starfi sínu sem nuddari, en í umfjölluninni segist maðurinn meðal annars hafa verið dæmdur án dóms og laga þegar hið rétta er að maðurinn hlaut sex ára dóm í Landsrétti fyrir brot gegn fjórum konum. Þá hlaut hann annan dóm fyrir nauðgun á einni konu í viðbót í janúar í fyrra. Í kjölfar umfjöllunar Vísis skrifaði aktivistahópurinn Öfgar opið bréf á vef Heimildarinnar og segir hana stangast á við siðareglur blaðamanna og raunar vera alveg siðlausa því umfjöllun af þessu tagi sé til þess fallin að skaða þolendur mannsins. Við ræddum við tvær liðskonur Öfga, þær Huldu Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttur og Þórhildi Arnarsdóttur.

Endó vikan hefst í dag, en mars er árveknismánuður endómetríósu á heimsvísu. Endósamtökin halda upp á vikuna með margs konar dagskrá og viðburðum. Við fengum til okkar Lilju Guðmundsdóttur formann samtakanna sem sagði okkur nánar af því sem í boði er og ræddi stöðu þeirra sem glíma við endómetríósu á Íslandi í dag.

Svo fórum við yfir íþróttir helgarinnar með Helgu Margréti Höskuldsdóttur af íþróttadeildinni.

Tónlist:

Júníus Meyvant og KK - Skýjaglópur.

Laufey - Street by street.

The Heavy Heavy - Go down river.

Boygenius f

Var aðgengilegt til 05. mars 2024.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,