13:00
Samfélagið
Verndun hafsvæða, lífsviljaskrá, málfar og söngvakeppnin 1986

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: [email protected]

Við ætlum að ræða aðeins samkomulag sem náðist á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í gær um verndun hafsvæða. Þetta samkomulag hefur ekki verið endanlega útfært en það snýr að hafsvæðum utan landhelgi ríkja og var lengi í vinnslu. Það er stefnt að því að á þessum áratug náist að vernda 30% þessara svæða. Við förum yfir þetta betur með Lísu Anne Libungan sérfræðingui í vistkerfi hafs hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

VIð ræðum við Ingrid Kuhlman sem er formaður Lífsvirðingar, félags sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi - við ætlum að ræða svokallaða lífsviljaskrá, sem stóð íslendingum til boða um tíma en var svo aflögð. Félagið vill fá hana aftur í gagnið. Við ræðum líka um dánaraðstoð og hvar umræða um þau mál standa á Íslandi í dag, en vísbendingar eru um að heilbrigðisstarfsfólk líti slíkt sífellt jákvæðari augum.

Við fáum heimsókn frá Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra RÚV og málfarsmínútan verður líka á sínum stað.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,