06:50
Morgunvaktin
Hér eru alltof fá sjúkrahúsrými

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Sjúkrahúsrými í landinu eru alltof fá. Þeim hefur fækkað á umliðnum árum og viðbótin sem fæst þegar nýbygging Landspítala við Hringbraut verður tekin í gagnið dugar ekki til að ná þeim fjölda sem er á hinum Norðurlöndunum. Svanur Sigurbjörnsson, læknir og kennari við Læknadeild HÍ, fjallaði um stöðuna en hann skrifaði grein um efnið í Læknablaðið.

Björn Malmquist fréttamaður er fluttur búferlum til Brussel og mun flytja fréttir þaðan á miðlum Ríkisútvarpsins. Hann verður á Morgunvaktinni á mánudögum og segir frá því sem er efst á baugi í borginni sem stundum er kölluð "höuðborg Evrópu" vegna mikils fjölda alþjóðastofnana sem þar eru.

Lífskjarakrísa er í Bretlandi; verðlag hefur hækkað, skortur er á tilteknum grænmetis- og ávaxtategundum og gripið hefur verið til verkfalla og tímabundinna vinnustöðvana. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir ástand mála.

Tónlist:

Jolene - Dolly Parton,

Un di felice, eterea (úr La Traviata) - Roland Villazón og Anna Netrebko,

You can call me Al - Paul Simon.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 44 mín.
,