23:00
Ólátagarður
Brenndu bananarnir & Tucker Carlsons Jonestown Massacre

Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.

Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.

Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.

Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson, Katrín Helga Ólafsdóttir og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.

Snæbjörn ferðaðist norður til Akureyrar um jólin og fangaði tækifærið til að ná spjalli við hljómsveitina Brenndu Bananana. Þau Grétar Ólafur, Hekla Sólveig og Sigrún Freygerður komu við í höfuðstöðvum Ríkisútvarpsins á Akureyri, og ræddu við Snæja um tónlistina, lífið á Akureyri og sögu hljómsveitarinnar.

Tilraunasveitin Tucker Carlson?s Jonestown Massacre sendi á dögunum frá sér sína sjöttu breiðskífu, Tucker II, og hafa nú gefið út plötur á hverju ári í fimm ár samfleytt. Í tilefni af þessu rýnir Bjarni Daníel í feril þessarar dularfullu sveitar.

Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson & Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack

Lagalisti:

Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður

Brenndu bananarnir - Grétar er farinn

Brenndu bananarnir - Komdu með hann strax

Brenndu bananarnir - Íslenskt ferðalag

Brenndu bananarnir - Gamlir kallar á hjólum

Brenndu bananarnir - Prófatíð

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Víðalín

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Stupid Cloudy

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - The Moon (The Microphones Cover)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Montevideo

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Kursk (brot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Darling Range (brot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Flágil

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Dusterlagið (brot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Post-sessions 2020 (viðtalsbrot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - lalala (brot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Tucker bolli (brot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Prime 5

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Twang (brot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - James 4 (brot)

Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Þá Flýðu Fyrir Hans Ofríki

Sniglarnir í töfraskógi - Grámann regnbogi

Lempi Elo - Ullakko

Lilja María Ásmundsdóttir, Inês Zinho Pinheiro - IV. Spiders draw lines between my thoughts

Ægir, MSEA - accepting uncertainty

Var aðgengilegt til 09. janúar 2024.
Lengd: 59 mín.
,